PSG ætlar að reka Pochettino og vill fá Conte Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2022 15:00 Þrátt fyrir að vera búinn að gera Paris Saint-Germain að frönskum meisturum verður Mauricio Pochettino líklegast ekki við stjórnvölinn hjá liðinu á næsta tímabili. getty/Xavier Laine Nýkrýndir Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain ætla að segja knattspyrnustjóranum Mauricio Pochettino upp störfum eftir tímabilið. PSG vill fá Antonio Conte, stjóra Tottenham, til að taka við.
PSG tryggði sér franska meistaratitilinn með 1-1 jafntefli við Lens á laugardaginn. Lionel Messi skoraði mark Parísarliðsins. Þrátt fyrir titilinn er afar ólíklegt að Pochettino verði áfram við stjórnvölinn hjá PSG. Liðið féll úr leik í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fyrir Real Madrid og mistókst að vinna franska bikarmeistaratitilinn. Erlendir fjölmiðlar greina frá því að PSG sé að leggja lokahönd á það að reka Pochettino sem tók við liðinu um þarsíðustu áramót. Zinédine Zidane er efstur á óskalista PSG en talið er að hann vilji taka við franska landsliðinu eftir HM í Katar. PSG rennir hýru auga til Conte sem tók við Tottenham í byrjun nóvember. Liðið er í harðri baráttu við Arsenal um 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. PSG hefur átta sinnum orðið franskur meistari síðan auðmennirnir frá Katar keyptu félagið 2011. Parísarliðið hefur hins vegar ekki enn tekist að vinna Meistaradeildina og oft fallið úr leik á neyðarlegan hátt í keppninni.
Franski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag Sjá meira