Við erum búin að fá fyrstu fréttir af Hraunsfirði og það er helst að vatnið er orðið að mestu íslaust og það má reikna að það verði alveg íslaust í vikunni. Fyrstu fiskarnir þegar komnir á land og sem fyrr er það bleikja sem veiðimenn leita að þarna en samt fékkst einn sjóbirtingur líka.
Bleikjan er oft furðu væn og vel haldin á þessum tíma enda er fæðuframboð í vatninu með ágætum. Þetta er eitt af þessum vötnum sem þarf að gefa sér góðan tíma til að læra vel á því þrátt fyrir að á góðum degi sé mikið af bleikju að sýna sig er hún oft afskaplega dyntótt. Það sem gefur best í byrjun tímabils er oft grænleitar púpur og litlar straumflugur en það getur líka verið dagamunur á því sem hún vill. Þeir sem eiga eftir að prófa vatnið ættu klárlega að gera það í sumar því það er eitt við bleikjuna þarna á sumrin, sem er að langmestu sjóbleikja, að betri matfisk er varla hægt að fá.