Það kviknuðu óneitanlega einhverjir blossar hjá pörunum í síðasta þætti stefnumótaþáttanna Fyrsta blikið en þáttur númer þrjú verður svo á dagskrá í kvöld klukkan 18:55.
Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)
Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þátt tvö, en hafa enn ekki séð hann, þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.
....
Freyr og Vala
Þau framkvæma það sem þeim dettur í hug, dreymir báðum um að ferðast og búa erlendis, elska Þórsmörk og eru alls ekkert að stressa sig á áliti annarra.
Eins og sjá má í klippu hér fyrir neðan var stefnumótið þeirra í þættinum vægast sagt vel heppnað.
Þó svo að landafræðilega sé kannski langt á milli Freys og Völu eru þau enn í sambandi og njóta þess að kynnast og heillast.

Jónína og Bjarki
Bjarki er mikil hestamaður sem prjónar ekki einungis á hestum en hann gerði sér lítið fyrir og mætti með heimaprjónaða sokka og færði Jónínu á blindu stefnumóti.
Jónína og Bjarki eiga það sameiginlegt að vera miklir jafnréttissinnar, mikið fjölskyldufólk og bæði eiga þau löng hjónabönd að baki.
Jónína og Bjarki stigu stórt skref þetta kvöld og eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan nutu þau sín vel á stefnumótinu.
Jónína og Bjarki taka hlutunum rólega og þó svo að þau hafi enn ekki hist á stefnumóti númer tvö eru þau enn í sambandi og segjast bæði vilja reyna á það að hittast aftur og sjá hvert það leiðir.
Lagalistar úr þáttunum á Spotify
Tónlistin úr þáttunum hefur vakið töluverða athygli og nú verður hægt að nálgast lögin úr hverjum þætti inn á Spotify síðu Fyrsta bliksins.
Þeir sem vilja koma sér í réttu stemninguna fyrir kvöldið geta nálgast lagalista úr þætti tvö og eitt hér fyrir neðan.
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ.
Aðdáendur Fyrsta bliksins geta fylgst með skemmtilegu aukaefni á Instagram síðu þáttarins @fyrstablikid.
Þættirnir eru átta talsins og verða á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55. Í kjölfarið verða allir þættirnir aðgengilegir á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.