Fótbolti

U17 einum leik frá lokakeppni EM

Atli Arason skrifar
Landsliðið í Dublin
Landsliðið í Dublin KSÍ

Íslenska U17 ára landslið kvenna vann 1-0 sigur á Slóvakíu í milliriðlum undankeppni EM 2022. Riðillinn er allur leikinn í Dublin á Írlandi.

Ísabella Sara Tryggvadóttir skoraði eina mark leiksins á 84. mínútu en slóvenska liðið var einum leikmanni færri síðustu 20 mínúturnar.

Ísland fer með sigrinum á topp deildarinnar með 4 stig. Ísland gerði jafntefli við Finnland í fyrsta leiknum sínum en seinna í dag mun Finnland leika við Írland í hinum leik riðilsins.

Lokaleikur Íslands er svo á þriðjudaginn þegar þær mæta heimakonum frá Írlandi. Það lið sem vinnur riðillinn fer beint áfram í lokakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×