Gripið til aðgerða fyrir veitingahús og tónlistarfólk Heimir Már Pétursson skrifar 18. janúar 2022 13:15 Börum hefur verið gert að loka alveg í yfirstandandi sóttvarnaaðgerðum. Vísir/Vilhelm Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp um aðgerðir til að bæta veitingastöðum tekjutap vegna sóttvarnaaðgerða. Styrkirnir miðaðst við stöðugildi og geta hæstir orðið tólf milljónir króna. Þá eru aðgerðir í undirbúningi vegna tekjutaps fólks í sviðslistum.
Frumvarp Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur utanríkisráðherra og staðgengills fjármálaráðherra um aðgerðirnar var samþykkt í ríkisstjórn í morgun og verður lagt fyrir þingflokka stjórnarflokkanna í dag. Aðgerðirnar eru til að styðja við veitingastaði sem gert hefur verið að loka vegna yfirstandandi sóttvarnaaðgerða. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra lagði frumvarpið fram í ríkisstjórn sem staðgengill Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem er í leyfi.Vísir/Vilhelm „Þetta eru í raun styrkir fyrir aðila í veitingarekstri með vínveitingaleyfi sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna skerts opnunartíma,“ segir Þórdís Kolbrún. Áður hafi verið miðað við að lágmarki 40 prósenta tekjufall en það verði fært niður í 20 prósent. Styrkirnir breytist eftir tekjufallinu allt frá 20 prósentum upp í 60 prósent og væru hugsaðir til greiðslu launa. Þessar tilteknu aðgerðir kosta ríkissjóð umtalsverðar upphæðir. „Það er eins og venjulega aðeins erfitt að meta umfangið. Þetta geta verið allt að þrír milljarðar. Mat ráðuneytisins er að það sé líklegra að vera í kringum einn og hálfur,“ segir Þórdís Kolbrún. Styrkur geti ekki verið hærri en 500 þúsund krónur á hvert stöðugildi ef tekjufall væri frá 20 prósentum upp í sextíu prósent en 600 þúsund á hvert stöðugildi ef tekjufallið væri meira en 60 prósent. Hámarksstyrkur á hvert fyrirtæki geti ekki verið hærri en tíu til tólf milljónir króna. Aðgerðirnar bætast við seinkun gjalddaga opinberra gjalda sem Alþingi samþykkti í gær. Að auki er hópur á vegum stjórnvalda að skoða hvort grípa þurfi til enn frekari aðgerða til stunings fyrirtækjum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld vera að skoða frekari stuðning við ferðaþjónustu- og viðburðafyrirtæki.Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjótnvöld einnig vera að skoða frekari styrki til ferðaþjónustuaðila og viðburðahaldara. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hafi sömuleiðis kynnt viðbótarframlög á fjórða hundruð milljónir króna í ýmsa sjóði vegna sviðslista og tónlistar. Erum við þá að tala um tónlistarmenn, eins popptónlistarmenn og aðra sem hafa farið mjög illa út úr faraldrinum og ekki getað haldið tónleika í bráðum tvö ár flestir? „Það er verið að hugsa um þennan hóp já. Það er verið að reyna að beina fjármunum í ólíka sjóði þannig að það gagnist sem flestum,“ segir Katrín Jakobsdóttir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Veitingastaðir Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Vilja skoða fleiri kosti og krefja Willum svara Félag atvinnurekenda hefur sent Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra erindi þar sem settar eru fram sex spurningar til ráðherra um hvaða valkostir hafi verið til skoðunar áður en tekin var ákvörðun um að herða sóttvarnaaðgerðir stórlega í lok síðustu viku. 18. janúar 2022 12:58 Ráðherrar skýri nýjar sóttvarnaraðgerðir samdægurs Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að ráðherrar gefi Alþingi skýrslu, samdægurs, eða eins fljótt og auðið er, eftir að sóttvarnaraðgerðir eru kynntar eða framlengdar af hálfu stjórnvalda. 17. janúar 2022 10:43 Fengu tiltal frá lögreglu vegna ruglingslegra sóttvarnareglna Lögreglan á Suðurlandi heimsótti Gróðurhúsið í Hveragerði fyrr í kvöld vegna sóttvarnareglna sem höfðu verið brotnar inni í mathöllinni á staðnum. Eigandi Gróðurhússins segir að bætt verði úr sóttvörnum á staðnum fyrir morgundaginn en reglur hafi verið óskýrar þegar þær breyttust á miðnætti í gær. 15. janúar 2022 20:19 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Sjá meira
Vilja skoða fleiri kosti og krefja Willum svara Félag atvinnurekenda hefur sent Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra erindi þar sem settar eru fram sex spurningar til ráðherra um hvaða valkostir hafi verið til skoðunar áður en tekin var ákvörðun um að herða sóttvarnaaðgerðir stórlega í lok síðustu viku. 18. janúar 2022 12:58
Ráðherrar skýri nýjar sóttvarnaraðgerðir samdægurs Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að ráðherrar gefi Alþingi skýrslu, samdægurs, eða eins fljótt og auðið er, eftir að sóttvarnaraðgerðir eru kynntar eða framlengdar af hálfu stjórnvalda. 17. janúar 2022 10:43
Fengu tiltal frá lögreglu vegna ruglingslegra sóttvarnareglna Lögreglan á Suðurlandi heimsótti Gróðurhúsið í Hveragerði fyrr í kvöld vegna sóttvarnareglna sem höfðu verið brotnar inni í mathöllinni á staðnum. Eigandi Gróðurhússins segir að bætt verði úr sóttvörnum á staðnum fyrir morgundaginn en reglur hafi verið óskýrar þegar þær breyttust á miðnætti í gær. 15. janúar 2022 20:19