Úrvalsdeildin í rafíþróttum fær nýtt nafn Hjörtur Leó Guðjónsson og Runólfur Trausti Þórhallsson skrifa 14. janúar 2022 20:03 Ljósleiðaradeildin. Keppni í úrvalsdeildinni í rafíþróttum CS:GO á Stöð 2 Esports er hafin á ný og verður undir merkjum Ljósleiðarans næstu þrjú árin. Deildin mun heita Ljósleiðaradeildin en nýtt útlit var kynnt til leiks þegar deildin fór aftur af stað eftir áramót.
Ljósleiðarinn hefur stutt vel við rafíþróttir síðustu ár og er stoltur bakhjarl þessarar ört vaxandi íþróttar. Frá þessu var greint á vef rafíþróttasamtaka Íslands nú í kvöld. „Við erum afar stolt yfir því að geta stutt við rafíþróttirnar með þessum hætti. Við höfum fylgst vel með því góða starfi sem Rafíþróttasamtök Íslands eru að vinna og það skiptir máli að rafíþróttum sé gert hátt undir höfði. Stöð 2 Esports og RÍSÍ eru með mjög metnaðarfull markmið þegar kemur að umfjöllun um rafíþróttir og við viljum styðja við að þau náist,“ segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. Erling Freyr, Aron Ólafsson og Eiríkur StefánVísir/Hulda Margrét „Það skiptir líka miklu máli að sem flestir spilarar sitji við sama borð, hvar sem þeir eru á landinu. Þar skiptir Ljósleiðarinn auðvitað miklu máli með sínar öflugu tengingar. Við leggjum okkur fram um að koma sem flestum í gæðasamband og höfum sett okkur háleit markmið þegar kemur að Ljósleiðaravæðingu hringinn í kringum landið.“ Fyrir þá allra kröfuhörðustu Aron Ólafsson framkvæmdastjóri Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) er hæstánægður með samstarfið við Ljósleiðarann. „Við sem spilum tölvuleiki vitum hversu mikilvægt gott netsamband er. Ljósleiðarinn er fyrir þá allra kröfuhörðustu og það þekkja úrvalsdeildarleikmenn sem vilja hafa allt upp á tíu. Deildin er gríðarlega spennandi í ár og það var hrikalega gaman að fara aftur af stað á nýju ári. Við hlökkum mikið til næstu þriggja ára með Ljósleiðarann í okkar liði.“ Og Stöð 2 Esports er með metnaðarfull markmið þegar kemur að rafíþróttum. „Mikil ánægja ríkir með samstarf Ljósleiðarans og Stöðvar 2 Esports í þessu verkefni. Langtíma markmið okkar er að hjálpa rafíþróttum á Íslandi að vaxa og dafna og er samstarfið mikilvægur liður í þeirri vegferð. Ljósleiðaradeildin er stærsta verkefni okkar og Rafíþróttasamtaka Íslands og með aðkomu Ljósleiðarans hefur það fengið styrkari stoðir til framtíðar,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson forstöðumaður íþróttadeildar á Sýn.
Ljósleiðaradeildin Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn