Ný brú yfir Fossvog tilbúin eftir um tvö ár Heimir Már Pétursson skrifar 8. desember 2021 19:20 Vinningstillagan Alda kom frá teymi á vegum EFLA hf. vegagerðin Borgarstjóra og bæjarstjóra Kópavogs líst vel á vinningstillögu að brú milli Reykjavíkurflugvallar og Kársness sem kynnt var í dag. Brúin verður eitt fyrsta mannvirkið sem tengist Borgarlínu.
Í upphafi kepptu fimmtán aðilar um hönnun brúarinnar en að lokum voru þrjár tillögur valdar til að skoða betur. Í dag var niðurstaða dómnefndar síðan kynnt í Háskólanum í Reykjavík og upplýst að hópur á vegum Eflu verkfræðistofu átti vinningstillöguna. Þessi tillaga kallaðist Hvalbak og var frá KI Rådgivende Ingeniører og Gottlieb Paludan Architects í samstarfi við ES-Consult og Gísla Sæmundsson arkitekt hjá Arkteikn.vegagerðin Eftir tvö til þrjú ár verður risin 270 metra brú frá Kársnesi yfir að Reykjavíkurflugvelli fyrir gangandi, hjólandi og Borgarlínu. Brúin mun stytta mjög ferðatímann á milli Kársnesins og miðborgar Reykjavíkur. Tillagan Sjónarrönd kom frá Basalt Arkitektum.vegagerðin Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri voru hæstánægðir með vinningstillöguna. Þeir telja að brúin eigi eftir að breyta miklu fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Ármann Kr Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík eru hæstánægðir með væntanlega brú yfir Fossvog og telja hana eiga eftir að breyta miklu fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.Stöð 2/Sigurjón „Ég á auðvitað eftir að skoða útfærsluna nánar. En það að fá þessa tengingu er miklu meiri breyting en ég held við áttum okkur á. Kársnesið færist náttúrlega algerlega inn í Nauthólsvík nánast og öfugt,“ segir Dagur. Ármann segir brúna stytta leið um 90 þúsund manns í stóru sveitarfélögunum sunnan Reykjavíkur til og frá vinnu. Háskólarnir, Landspítalinn og stjórnsýslan séu fjölmennustu vinnustaðir landsins. Þá styttist ferðatíminn frá Hamraborg í Háskólann í Reykjavík úr um sautján mínútum í sex. „Sem nýtist nákvæmlega öllum þessum níutíu þúsundum, ekki bara Kópavogsbúum heldur Garðbæingum og Hafnfirðingum líka. Þannig að ég er mjög bjartsýnn á þetta. Þessi tenging og þessi hringur sem verður til hérna í krinigum Fossvoginn með þessu á eftir að auka mjög mikið útivist á svæðinu vil ég meina,“ segir Ármann og borgarstjóri tekur heilshugar undir það. Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni segir að brúin Alda verði tilbúin árið 2024.Stöð 2/Sigurjón Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni segir að innan fárra ára verði síðan byggt yfir Borgarlínuna þar sem hún fer í gegnum háskólaþorpið undir Öskjuhlíð. Nú taki hins vegar við um eins árs hönnunarferli hjá Vegagerðinni vegna brúarinnar. „Eftir það hefjast framkvæmdir. Þannig að í lok árs 2023, byrjun árs 24 getur fólk farið að njóta þess að fara yfir brúna,“ segir Bryndís.
Reykjavík Kópavogur Borgarlína Fossvogsbrú Tengdar fréttir Efla vann hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog EFLA, í samstarfi við BEAM Architects, vann sigur í hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog. Útlit sigurtillögunnar var kynnt á fundi Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar í Háskólanum í Reykjavík fyrr í dag. 8. desember 2021 11:46 Stórt skref í átt að brú yfir Fossvog Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti á fundi sínum á þriðjudag afgreiðslu skipulagsráðs þess efnis að tillaga að deiliskipulagi brúar yfir Fossvog verði auglýst. 12. október 2018 08:50 Brú yfir Fossvog forsenda uppbyggingar Gert er ráð fyrir að hundruð íbúða muni rísa á Kársnesi á næstu árum. 2. desember 2016 06:00 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira
Efla vann hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog EFLA, í samstarfi við BEAM Architects, vann sigur í hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog. Útlit sigurtillögunnar var kynnt á fundi Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar í Háskólanum í Reykjavík fyrr í dag. 8. desember 2021 11:46
Stórt skref í átt að brú yfir Fossvog Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti á fundi sínum á þriðjudag afgreiðslu skipulagsráðs þess efnis að tillaga að deiliskipulagi brúar yfir Fossvog verði auglýst. 12. október 2018 08:50
Brú yfir Fossvog forsenda uppbyggingar Gert er ráð fyrir að hundruð íbúða muni rísa á Kársnesi á næstu árum. 2. desember 2016 06:00