Fimmtíu milljarða viðsnúningur í viðskiptajöfnuði Eiður Þór Árnason skrifar 1. desember 2021 11:30 Hrein staða við útlönd var jákvæð um 41,1% af landsframleiðslu. Vísir/Hanna 13,1 milljarða króna afgangur var á viðskiptajöfnuði við útlönd á þriðja ársfjórðungi. Það er 50 milljarða króna betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 12,5 milljarða króna betri en á sama fjórðungi árið 2020. 31,1 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2021.
Halli á vöruskiptajöfnuði var 47,4 milljarða króna en 60,3 milljarðar króna afgangur var af þjónustujöfnuði. Þetta kemur fram í bráðabirgðayfirliti Seðlabanka Íslands yfir greiðslujöfnuð við útlönd og erlenda stöðu þjóðarbúsins. Í lok þriðja ársfjórðungs var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.294 milljarða króna eða 41,1% af vergri landsframleiðslu (VLF). Batnaði hún um 175 milljarða króna eða 5,6% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.964 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.670 milljörðum. Munar mest um aukið verðmæti útfluttrar þjónustu Að sögn Seðlabankans skýrist betri viðskiptajöfnuður aðallega af hagstæðari þjónustuviðskiptum um sem nemur 40,4 milljörðum króna. Munar þar mest um 70,5 milljarða króna hærra verðmæti útfluttrar þjónustu en verðmæti innfluttar þjónustu jókst mun minna, eða um 30,1 milljarð króna. Vöruviðskipti voru lakari um sem nemur 15,3 milljörðum króna. Frumþáttatekjur voru 6,5 milljarða króna óhagstæðari og halli rekstrarframlaga jókst um 6,1 milljarð króna. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 89 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi og gengis- og verðbreytingar um 86 milljarða króna. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum lækkaði um tæp 1% milli fjórðunga en verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði hækkaði um 5,6%.
Seðlabankinn Efnahagsmál Mest lesið Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki Atvinnulíf „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Gengi Icelandair flaug upp á við Viðskipti innlent Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Viðskipti innlent Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Viðskipti innlent Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Viðskipti innlent Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Fleiri fréttir Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Ráðin markaðsstjóri Sensa Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Verðtryggð jafngreiðslulán aðeins í boði fyrir fyrstu kaupendur 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Fegurð er glæpur kom út í mínus Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Hafsteinn Dan nýr lagaprófessor við HR Ráðin nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun Sjá meira