Ronaldinho gæti aftur verið á leið í fangelsi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2021 15:01 Ronaldinho var heiðursgestur á leik Paris Saint-Germain og RB Leipzig á dögunum. PSG var fyrsta evrópska liðið sem Brassinn lék með. getty/Tnani Badreddine Brasilíska fótboltagoðið Ronaldinho gæti verið á leið í fangelsi á ný því hann hefur ekki greitt fyrrverandi kærustu sinni framfærslueyri.
Ronaldinho hefur fengið frest til 1. desember til að leysa málin með fyrrverandi kærustu sinni, Priscillu. Annars á hann á hættu að eignir hans verði gerðar upptækar eða hann fari í fangelsi. Ronaldinho þarf að greiða Priscillu rúmar tvær milljónir króna á mánuði. Hann hefur hins vegar trassað það og skuldirnar safnast upp. Á síðasta ári var Ronaldinho stungið í steininn í Paragvæ fyrir að nota falsað vegabréf. Hann sat inni í 32 daga. Hann þurfti þó að dvelja í Paragvæ í næstum því hálft ár. Þá hefur Ronaldinho lent í vandræðum vegna ógreiddra skatta. Ronaldinho, sem er 41 árs, var einn besti fótboltamaður heims á sínum tíma. Hann varð heimsmeistari með brasilíska landsliðinu 2002 og varð tvisvar sinnum Spánarmeistari og einu sinni Evrópumeistari með Barcelona. Þá varð hann ítalskur meistari með AC Milan 2011. Ronaldinho fékk Gullboltann 2005 og var valinn besti leikmaður heims hjá FIFA 2004 og 2005.
Fótbolti Brasilía Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira