Tugir þúsunda syrgja vinsælustu söngkonu Brasilíu Heimir Már Pétursson skrifar 7. nóvember 2021 09:45 Aðdáendur og fjölskylda söngkonunnar ungu syrgja fráfall hennar. Tugir þúsunda mættu á minningarathöfn í borginni Goiana í gær til að votta henni virðingu sína. Mynd/AP Tugir þúsunda aðdáenda brasilísku söngkonunnar Marília Mendonça komu saman í heimaborg hennar Goiania í morgun til að minnast hennar en hún fórst í flugslysi á föstudag aðeins 26 ára gömul.
Flugvélin var á leið frá Goiania til Caratinga norður af Rio de Janeiro þegar hún fórst. Auk söngkonunnar fórust fjórir aðrir farþegar, þeirra á meðal frændi hennar og framleiðandi hennar. Mendonça er vinsælasta dægurlagasöngkona Brasilíu. Marilia Mendonça var ein vinsælasta dægurlagasöngkona Brasilíu. Hún lék kántrítónlist sem kallast sertanejo í heimalandi hennar.Mynd/AP Syrgjendur tóku að safnast saman fyrir framan íþróttahöll í heimaborg hennar strax á föstudag en minningarathöfn um hana fór fram í íþróttahöllinni í gær þar sem kista hennar var. Tugir þúsunda aðdáenda biðu í röðum í steikjandi hita fyrir utan íþróttahöllina eftir því að komast að kistunni til að votta söngkonunni virðingu sína. Marília Mendonça var kántrísöngkona og mikill feministi og fjölluðu textar hennar margir um valdeflingu kvenna og andúð á heimilisofbeldi. Hún var á leið að halda tónleika þegar flugvél hennar fórst en ekki liggur fyrir hvað varð til þess að flugvélin hrapaði neðan við foss. Skömmu fyrir brottförina póstaði Mendonca myndbandi af sér þar sem hún var á leið um borð í flugvélina.
Brasilía Tónlist Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Fleiri fréttir Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sjá meira