„Það er mjög erfitt að pirra mig“ Sindri Sverrisson skrifar 8. október 2021 08:01 Arnar Þór Viðarsson hefur haft að mörgu að hyggja fyrir landsleikinn gegn Armeníu í kvöld. vísir/vilhelm Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, segir að ungu leikmennirnir í landsliðinu þurfi að læra hratt og vel. Hann ergir sig ekki á því hve marga leikmenn vantar í hópinn að þessu sinni.
Ísland mætir Armeníu á Laugardalsvelli í kvöld og verður að vinna til að halda í veika von um að komast í umspil fyrir HM. Af ýmsum ástæðum er Arnar nú án fjölmargra leikmanna sem spilað hafa fyrir Ísland á síðustu árum. Suma hefur hann ekki valið og aðrir eru meiddir. Arnar þarf því til að mynda að sækja stig í kvöld án þess að hafa til taks leikmann úr einhverri af fimm bestu deildum Evrópu. Í hópnum í kvöld eru tveir af þremur leikjahæstu mönnum í sögu landsliðsins, Birkir Már Sævarsson og Birkir Bjarnason með 101 landsleik hvor, en einnig fjórtán leikmenn sem eru 23 ára eða yngri og hafa samtals leikið 62 landsleiki. Arnar segist ekki láta það fara í taugarnar á sér að geta ekki valið sitt sterkasta lið. „Ég get alltaf stillt upp mínu sterkasta liði. Ég treysti þeim leikmönnum sem hér eru fullkomlega. Þó að verkefnið sé krefjandi þá er það mjög skemmtilegt. Það er ekkert í boði að vera eitthvað að kvarta og kveina. Við erum með frábæra, unga leikmenn í hópnum. Marga reynda leikmenn líka. Þetta eru bara tækifæri. Ég trúi því að við verðum farnir að taka stig mjög fljótlega,“ sagði Arnar. Viðtalið við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Arnar Þór fyrir leikinn við Armeníu Meiðsli halda til dæmis Alfreð Finnbogasyni, Herði Björgvini Magnússyni, Sverri Inga Ingasyni og Jóhanni Berg Guðmundssyni frá leikjunum. Svo ekki sé talað um Aron Einar Gunnarsson og Gylfa Þór Sigurðsson sem báðir eru sakaðir um kynferðisbrot og óvíst er að spili fleiri landsleiki. Pirrar þessi staða þjálfarann ekki? „Það er mjög erfitt að pirra mig,“ sagði Arnar í viðtali við Guðjón Guðmundsson í gær. Eina krafan að eiga lið sem getur komist á stórmót Arnar segir að það muni taka tíma að byggja upp nýtt lið og það velti á ungu leikmönnunum hvort það takist á skömmum eða löngum tíma. „Æskilegt jafnvægi felst í að hafa 17-18 eldri og reyndari leikmenn í landsliðshóp, en 5-7 unga leikmenn. Hjá okkur er þetta alveg öfugt. Þetta getur tekið þrjá mánuði. Þetta getur líka tekið tvö ár. Þetta kemur þegar að ungu leikmennirnir eru búnir að taka öll skrefin, bæði hjá félagsliðum sínum og í landsliðinu. Það er okkar hlutverk að vernda þessa ungu leikmenn líka. Það er mjög auðvelt að henda þeim öllum inn á í 90 mínútur og sjá hvort þeir syndi í land. En við verðum að taka réttu ákvarðanirnar, á réttum tíma, fyrir hvern og einn einstakling,“ segir Arnar. Ísland fékk eitt stig út úr leikjunum þremur við Þýskaland, Norður-Makedóníu og Rúmeníu í síðasta landsleikjaglugga, með því að gera jafntefli við Norður-Makedóníu.vísir/Hulda Margrét En er þá ekki hægt að gera kröfu um sigra gegn Armeníu og Liechtenstein? „Þú mátt gera kröfu. Við förum inn í hvern einasta leik til að vinna hann, að sjálfsögðu. Það má enginn misskilja það. En eina krafan er að eiga gott landslið sem getur komist á stórmót, helst eftir tvö ár.“ Betra að líta til framtíðar en að reyna að snúa ákvörðun Hólmars Athygli vakti að Arnar valdi Daníel Leó Grétarsson, miðvörð Blackpool á Englandi, í hópinn þrátt fyrir að hann hafi ekki svo mikið sem verið í leikmannahópi Blackpool í síðustu leikjum og ekki spilað leik síðan í ágúst. Kom til greina að velja Hólmar Örn Eyjólfsson, miðvörð Rosenborgar? „Ég talaði við Hólmar Örn síðast í sumar. Við áttum mjög gott spjall en Hólmar tjáði mér að hann væri hættur í landsliðinu. Að hann væri að einbeita sér að sínu félagsliði og sinni fjölskyldu. Sem þjálfari virðir maður það. Ég tel þá betri kost að líta til framtíðar. Við vitum að við erum að byggja upp og þróa okkar lið, og þá er að mínu mati betra að bíta í gegnum súra eplið og fara í gegnum skaflinn,“ sagði Arnar. Nánar er rætt við hann í viðtalinu hér að ofan.
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir Birkir fyrirliði í landsleik 102: Segist ekki berjast við nafna sinn um metið Í fjarveru Arons Einars Gunnarssonar, Kára Árnasonar og Jóhanns Bergs Guðmundssonar kemur það í hlut Birkis Bjarnasonar að vera fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta í leiknum við Armeníu á morgun. 7. október 2021 13:39 Svona var blaðamannafundur Arnars og Birkis fyrir leikinn við Armeníu Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, og Birkir Bjarnason svöruðu spurningum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag fyrir leik Íslands og Armeníu í undankeppni HM annað kvöld. 7. október 2021 12:16 Arnar: Þarft ekkert að vinna fyrir NASA til að sjá að þetta var eina ákvörðunin sem við gátum tekið Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, ræddi samskipti sín við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ, í aðdraganda að hann valdi nýjasta landsliðshóp sinn en það gerði hann á fjarfundi með íslenskum blaðamönnum í dag. 5. október 2021 15:43 Mest lesið Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Enski boltinn Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari Fótbolti Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Fótbolti „Ég elska það sem ég er að gera“ Enski boltinn „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Enski boltinn DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Golf Segja að há lestarfargjöld muni hafa „lamandi áhrif“ á HM Fótbolti Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik Fótbolti Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Enski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Segja að há lestarfargjöld muni hafa „lamandi áhrif“ á HM „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ „Settum meiri pressu á þær í seinni hálfleik“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Leik lokið: Ísland - England 0-1| Hetjuleg barátta í seinni dugði ekki til Hörmungar Brann halda áfram Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Byrjunarliðið gegn Englandi: Fjórar breytingar og afmælisbarnið á bekkinn Bjarki Steinn nálgast ítölsku úrvalsdeildina á ný Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn „Þær leita rosalega mikið upp kantana“ Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum „Fínt fyrir okkur en kannski ekki jafn fínt fyrir Englendinga“ Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Sjá meira
Birkir fyrirliði í landsleik 102: Segist ekki berjast við nafna sinn um metið Í fjarveru Arons Einars Gunnarssonar, Kára Árnasonar og Jóhanns Bergs Guðmundssonar kemur það í hlut Birkis Bjarnasonar að vera fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta í leiknum við Armeníu á morgun. 7. október 2021 13:39
Svona var blaðamannafundur Arnars og Birkis fyrir leikinn við Armeníu Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, og Birkir Bjarnason svöruðu spurningum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag fyrir leik Íslands og Armeníu í undankeppni HM annað kvöld. 7. október 2021 12:16
Arnar: Þarft ekkert að vinna fyrir NASA til að sjá að þetta var eina ákvörðunin sem við gátum tekið Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, ræddi samskipti sín við Vöndu Sigurgeirsdóttur, formann KSÍ, í aðdraganda að hann valdi nýjasta landsliðshóp sinn en það gerði hann á fjarfundi með íslenskum blaðamönnum í dag. 5. október 2021 15:43