Á leið frá ÍBV til Íslendingaliðs Kristianstad Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. ágúst 2021 16:30 Delaney Baie Pridham er farin frá ÍBV og mun semja við Kristianstad á næstu dögum. ÍBV Hin bandaríska Delaney Baie Pridham er á leið frá ÍBV til Íslendingaliðs Kristianstad sem leikur í sænsku úrvalsdeildinni. Pridham samdi við ÍBV fyrir tímabilið og hefur leikið frábærlega með liðinu í Pepsi Max deildinni í sumar. Hún er meðal markahæstu leikmanna deildarinnar eftir að hafa skorað sjö mörk í 10 leikjum. Þá skoraði hún eitt mark í tveimur bikarleikjum. Samkvæmt öruggum heimildum mbl.is hefur Delaney Pridham leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV og mun ganga í raðir Kristianstad á næstu dögum. Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest vistaskipti til Svíþjóðar á vefsíðu sinni og því styttist eflaust í að hún verði tilkynnt sem leikmaður Kristianstad. Félagaskiptaglugginn er lokaður svo liðið getur ekki fyllt skarðið sem Pridham skilur eftir sig með erlendum leikmanni. ÍBV þarf því að treysta á aðra leikmenn það sem eftir lifir tímabils. Kristianstad er mikið Íslendingalið en Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir leika með liðinu og Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari þess. Þá eru þrír aðrir Íslendingar í þjálfarateymi liðsins. Kristianstad er sem stendur í 4. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 20 stig að loknum 12 leikjum. ÍBV situr á sama tíma í 6. sæti Pepsi Max deildar kvenna í knattspyrnu með 16 stig að loknum 13 leikjum.
Pridham samdi við ÍBV fyrir tímabilið og hefur leikið frábærlega með liðinu í Pepsi Max deildinni í sumar. Hún er meðal markahæstu leikmanna deildarinnar eftir að hafa skorað sjö mörk í 10 leikjum. Þá skoraði hún eitt mark í tveimur bikarleikjum. Samkvæmt öruggum heimildum mbl.is hefur Delaney Pridham leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV og mun ganga í raðir Kristianstad á næstu dögum. Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest vistaskipti til Svíþjóðar á vefsíðu sinni og því styttist eflaust í að hún verði tilkynnt sem leikmaður Kristianstad. Félagaskiptaglugginn er lokaður svo liðið getur ekki fyllt skarðið sem Pridham skilur eftir sig með erlendum leikmanni. ÍBV þarf því að treysta á aðra leikmenn það sem eftir lifir tímabils. Kristianstad er mikið Íslendingalið en Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir leika með liðinu og Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari þess. Þá eru þrír aðrir Íslendingar í þjálfarateymi liðsins. Kristianstad er sem stendur í 4. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 20 stig að loknum 12 leikjum. ÍBV situr á sama tíma í 6. sæti Pepsi Max deildar kvenna í knattspyrnu með 16 stig að loknum 13 leikjum. Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna ÍBV Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“