Öskraði þegar hann heyrði fréttirnar MINISO 5. ágúst 2021 14:02 Binni Glee leitar uppi MINISO búðir hvar sem er í heiminum. „Ég elska þessa búð!" Binni Glee trylltist af fögnuði þegar uppáhalds búðin hans var opnuð í Kringlunni. „Mér finnst alveg gaman að versla. Ég er mjög hagsýnn og skipulagður í fjármálunum og elska að gera góð kaup. Ég er týpan sem fer yfir strimilinn eftir innkaupaferð, er alltaf „on a budget“. Ef einhversstaðar er auglýst útsala eða afsláttur er ég mættur,“ segir Brynjar Steinn Gylfason betur þekktur sem Binni Glee. Hann segist þó vilja ákveðin gæði fyrir peninginn og kaupir ekkert drasl. Hann fagnaði því ákaft þegar japanska lífsstílsverslunin MINISO var opnuð í Kringlunni en þar fer saman flott hönnun og afar gott verð. „Ég öskraði bara þegar ég sá að MINISO myndi opna. Ég bjó á Akureyri þá en var mættur um leið og ég komst suður, sjúklega spenntur. Ég elska þessa búð. Þarna er allt svo ódýrt en samt svo góðar vörur og ótrúlega krúttlegar,“ segir Binni en hann þekkti búðina vel. „Ég uppgötvaði MINISO fyrst árið 2018 þegar ég var á Filipseyjum og þá fyllti ég heila ferðatösku! Ég er reyndar mjög hrifinn af asískum búðum enda hálfur Filipseyingur en MINISO er uppáhaldsbúðin mín í heiminum. Ég fór til Kóreu sama ár og fór beint í MINISO og áður en ég fór til Þýskalands árið 2019 var ég búinn að gúggla fyrirfram hvar ég finndi MINISO búð og gerði mér síðan sérferð í það moll,“ segir Binni. Augnmaski sem hitnar er uppáhalds varan hans Binna. Hann segir vöruúrvalið mismunandi eftir löndum og alltaf eitthvað nýtt og spennandi bætast við. MINISO býður upp á frábært úrval af vörum, þ.á.m. heilmikið af snyrtivörum; förðunarbursta, svampa, naglalakk og tæki til að hreinsa húð. Einnig býður MINISO upp á vörur fyrir heimilið; glös, bolla, hnífapör, geymslubox og gólfmottur. Sömuleiðis er MINISO með sniðugar vörur fyrir ferðalög og útilegur; brúsa, hnakkapúða, ferðasnyrtitöskur, ferðatöskur, svefngrímur og margt fleira. Síðan er MINISO með heilmikið úrval af raftækjum; Heyrnatólum, hátalara, rakatæki, hulstur fyrir síma og vekjaraklukkur. Og þá er MINISO með leikföng og bangsa af öllum stærðum og gerðum en bangsarnir hafa verið með vinsælustu vörunum í MINISO. MINISO kemur í hverjum mánuði með nýjar og spennandi vörur og því yfirleitt hægt að finna eitthvað nýtt í hvert skipti sem þú heimsækir verslunina. Bara í þessum mánuði komu yfir eitt þúsund nýjar vörutegundir og fleiri nýjar vörur munu koma fyrir lok sumars. „Það er svo gaman að eiga vörur úr þessari búð því það er allt svo krúttlegt. Ég kaupi líklega mest snyrtivörur og lítil handklæði eða þvottastykki en líka kerti og ilmstangir fyrir heimilið,“ segir Binni. „Uppáhaldsvaran mín er augnmaski sem hitnar. Augun verða æði! Ég nota hann áður en ég fer að sofa og þá vakna ég laus við bauga. Ég keypti sex pakka af þessum maska á Filipseyjum og þegar þeir komu í búðina hér heima keypti ég strax fjóra pakka til að eiga. Ég hef líka verið að kaupa krúttleg glös og hulstur á símann, heyrnartól og ferðakodda til að nota í flugvél. Það er hægt að finna allt í þessari búð. Ef fólk þarf að kaupa skemmtilega gjöf „on a budget“ þá mæli ég með því að kíkja þangað,“ segir Binni. Hægt er að skrá sig á póstlista hjá MINISO og fá allar helstu upplýsingar um útsölur, viðburði, tilboð o.fl. Einnig er hægt að fylgjast með MINISO á Instagram og facebook Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Tónlist „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Flugfreyja, íþróttakona og ráðherra breyttu leiknum Lífið Fleiri fréttir Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira
„
Hægt er að skrá sig á póstlista hjá MINISO og fá allar helstu upplýsingar um útsölur, viðburði, tilboð o.fl. Einnig er hægt að fylgjast með MINISO á Instagram og facebook
Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Tónlist „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Flugfreyja, íþróttakona og ráðherra breyttu leiknum Lífið Fleiri fréttir Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira