Sjáðu markið sem Kristian Nökkvi skoraði fyrir Ajax gegn Leeds Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2021 16:30 Kristian Nökkvi Hlynsson er farinn að banka á dyrnar í aðalliði Ajax. getty/NESImages Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði fyrir aðallið Ajax í 3-1 sigri á Leeds United í æfingaleik í dag.
Kristian kom inn á sem varamaður í hálfleik og var ekki lengi að láta að sér kveða. Á 49. mínútu fékk hann boltann rétt fyrir innan vítateig, tók við honum og skoraði með góðu skoti og kom Ajax í 3-0. Markið má sjá hér fyrir neðan. 49. Run, pass, goal! Hlynsson 3-0 #PreSeason #ajalee pic.twitter.com/EDtPyORiOG— AFC Ajax (@AFCAjax) August 4, 2021 Þetta var annað mark Kristians fyrir Ajax á undirbúningstímabilinu en hann skoraði einnig í 6-0 sigri á HFC í byrjun júlí. Hann hefur spilað með varaliði Ajax í hollensku B-deildinni og æft með aðalliðinu. Kristian kom til Ajax frá Breiðabliki í janúar í fyrra. Lið Ajax í dag var aðallega skipað ungum leikmönnum en hjá Leeds voru öllu þekktari nöfn á blaði. Má þar meðal annars nefna Kalvin Phillips sem var í stóru hlutverki hjá enska landsliðinu sem fór í úrslit á EM. Kristian, sem er sautján ára, þykir afar mikið efni og skemmst er að minnast þess þegar Ronald de Boer, þjálfari hjá Ajax og fyrrverandi landsliðsmaður Hollands, kallaði hann hinn íslenska Kevin De Bruyne. Ajax varð hollenskur meistari á síðasta tímabili í 35. sinn. Ajax mætir NEC Nijmegen í 1. umferð hollensku úrvalsdeildarinnar 14. ágúst.
Hollenski boltinn Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Fleiri fréttir Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Sjá meira