Hjörtur Ingvi úr Hjaltalín heldur einleikstónleika Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. júní 2021 17:30 Hjörtur Ingvi Jóhannson hefur vakið athygli með hljómsveitinni Hjaltalín. Antje Taiga Jandrig Hjörtur Ingvi Jóhannsson úr Hjaltalín leikur spunatónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarðarsveit þann 27. júní 2021 klukkan 16:00. Tónleikarnir eru hluti af sólóverkefninu 24 myndir.
24 myndir eru spuna- einleikstónleikar þar sem tónlistarmaðurinn Hjörtur Ingvi spinnur á staðnum stuttar tónsmíðar úr öllum 24 tóntegundunum; dúr og moll, á píanó. Þessir tónleikar eru hinir fjórðu í tónleikaröðinni sem hófst árið 2019, og eru einnig partur af tónleikaröðinni @sumart. Engir tveir tónleikar eru eins, en Hjörtur Ingvi fær innblástur ýmist frá tónleikastaðnum eða náttúrunni hverju sinni. Miðaverð er 2500 krónur og miðar eru seldir við innganginn. Núna eru sex lög af tuttugu og fjórum, úr þessu verkefni, komin út á Spotify og að auki tvö tónlistarmyndbönd. Semur meira með Hjaltalín Hjörtur Ingvi hefur samið tónlist frá unga aldri, en segist framan af hafa einbeitt sér meira að því að leika lög annara á hljóðfæri, auk þess að stúdera spunann. Hann er meðlimur hljómsveitarinnar Hjaltalín og hefur með árunum tekið aukinn þátt í sköpunarferlinu þar. Hjörtur á stóran þátt í stærstu smellunum á nýjustu plötu sveitarinnar, en hann er aðallagahöfundur laganna Baronesse og Row auk þess sem hann samdi textann við Needles & Pins. Hann tekur þó skýrt fram að tónlist sveitarinnar sé samvinnuverkefni: „Það ber að taka það fram að það sem gerir Hjaltalín að því sem það er, er að allir taka þátt í sköpuninni og leggja sitt fram, þannig að lögin gætu aldrei sándað eins og þau gera, nema einmitt með þessum hóp.“ Hjörtur Ingvi segir að það sé gefandi að kenna á píanó.Antje Taiga Jandrig Kennslan gefandi Kvikmyndatónsmíðar og leikhús Þá hefur Hjörtur Ingvi einnig spreytt sig á kvikmyndatónsmíðum en hann samdi nokkur stef við kvikmyndina Days of Gray (2013) og einnig nokkur lög við kvikmyndina Autumn Lights, en lagið hans Seconds rataði í forval fyrir tilnefningar til Óskarsverðlaunanna 2017. Hann segir lagið hafa verið samstarf með félögum úr Hjaltalín, en það var sungið af Sigríði Thorlacius og upptökustjórn var í höndum Guðmundar Óskars. Hjörtur Ingvi hefur einnig spreytt sig á leikhúsinu, en hann var tónlistarstjóri á uppsetningu Þjóðleikhússins á Ronju Ræningjadóttur 2018. Samhliða öðrum verkefnum kennir Hjörtur Ingvi á píanó við Menntaskólann í Tónlist, auk þess að vera meðleikari með söngvurum. „Ég vinn mikið með fólki sem hefur önnur aðalhljóðfæri en píanó, svo sem söngvurum, gítarleikurum og svo framvegis. Það er mjög gefandi, því þessir nemendur hafa sérstaka sýn á tónlist sem litast af þeirra hljóðfæri.“ Þá hefur Hjörtur útskrifast með kirkjuorganistapróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. „Það nám hefur klárlega styrkt mig sem hljóðfæraleikara, enda bíður orgelið upp á töluvert öðruvísi möguleika en píanóið.“
Tónlist Hvalfjarðarsveit Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Fleiri fréttir Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira