Upphlaup vegna afarkosta Haralds skerpa línur í Sjálfstæðisflokknum Jakob Bjarnar skrifar 16. júní 2021 16:45 Óvænt hefur upphlaup í tengslum við Harald Benediktsson og prófkjör Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi orðið til að afhjúpa átök milli fylkinga innan Sjálfstæðisflokksins. Andrés Magnússon telur þetta misráðið örþrifaráð en Brynjar er undrandi á upphlaupinu. vísir/vilhelm Áhugamenn um stjórnmál og þar með innyfli Sjálfstæðisflokksins hafa komist í feitt í upphlaupinu í tengslum við afarkosti Haraldar Benediktssonar vegna komandi prófkjörs í Norðvesturkjördæmi.
Eins og Vísir hefur greint skilmerkilega frá var uppi fótur og fit meðal ýmissa Sjálfstæðismanna þegar spurðist að Haraldur Benediktsson oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi vildi láta gott heita í pólitíkinni ef hann hreppti ekki efsta sætið. Fjölmargir flokksmenn, einkum konur, furðuðu sig á þessu og töldu þetta til marks um karlpungahátt sem allt of lengi hafi riðið húsum í flokknum. Þannig má jafnvel leiða að því líkur að mikil kvenfrelsisbylgja eigi sér nú stað í Sjálfstæðisflokknum – þessum stærsta stjórnmálaflokki landsins. Eins og til að staðfesta það hefur Brynjar Níelsson, einn meðlimur fílupúkafélags flokksins, eins og hann kallar það sjálfur, risið til varnar Haraldi: „Ég undrast mjög ofsafengin viðbrögð nokkurra flokksystkina minna við heiðarlegu svari Haraldar Benediktssonar um að hann léti gott heita ef honum yrði hafnað í prófkjöri sem áframhaldandi oddvita sjálfstæðismanna í Norðvestur kjördæmi.“ Brynjar segir þetta hafa legið fyrir í marga mánuði „Þessi upphlaup núna eru augljóslega til þess að hafa áhrif niðurstöðu prófkjörsins. Freki kallinn í þessari sögu er ekki Haraldur Benediktsson. Hann gerði ekkert annað en að segja satt aðspurður. Það er allur glæpurinn,“ segir Brynjar á vinsælli Facebook-síðu sinni. Páll Magnússon er hjartanlega sammála Brynjari, upphlaupið vegna afarkosta Haralds að fái hann ekki efsta sætið sé hann hættur, sé illskiljanlegt. Páll vekur athygli á því að svo gæti farið að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins verði nánast einungis skipaður lögfræðingum.Vísir/vilhelm Páll Magnússon oddviti flokksins í Suðurkjördæmi tekur hjartanlega undir þetta sjónarmið og bætir því við að Haraldur sé bóndi sem vilji leiða lista Sjálfstæðismanna í sínu kjördæmi. Og segir að vel megi á benda á þá athyglisverðu staðreynd að í „fyrsta skipti í sögunni gæti ein stétt/starfsgrein - lögfræðingar - náð meirihluta í heilum þingflokki; m.a.s. langstærsta flokknum á þingi. Þar yrði enginn kennari, læknir, prestur, hjúkrunarfræðingur, iðnaðarmaður, verkamaður, sjómaður, verslunarmaður, skrifstofumaður, listamaður - nú eða bóndi. En lögfræðingarnir gætu orðið 8-10 í einum og sama þingflokknum!“ segir Páll á sinni Facebook-síðu og lætur broskall sem deplar auga fylgja þeirri ábendingu. Misráðið örþrifaráð Haraldur sjálfur er hissa á þessum látum Sjálfstæðiskvenna vegna afstöðu sinnar en þá gerist hið óvænta að Andrés Magnússon, sérlegur fulltrúi Davíðs Oddssonar ritstjóra á Morgunblaðinu, setur ofan í við Brynjar á hans vettvangi. En Morgunblaðið hefur verið talið draga taum þeirra sem eru skyldastir Miðflokksmönnum í þankagangi innan Sjálfstæðisflokksins, svo mjög að Davíð hefur verið vændur um að styðja Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. En við nákvæmlega þá línu hafa Brynjar, Páll og Haraldur verið kenndir, fremur en nokkuð annað. Andrés bendir af nokkrum myndugleik á að Sjálfstæðisflokkurinn boði nú til prófkjörs þar sem flokksmenn eru beðnir um að stilla frambjóðendunum upp í röð. Allt er það samkvæmt skipulagsreglum flokksins og öllum ljóst hvernig það gengur fyrir sig, þar á meðal frambjóðendunum, sem bjóða sig fram upp á þau býti. „Nú vill Haraldur spyrja kjósendur í prófkjörinu einhverrar allt annarar spurningar, þ.e.a.s. „Viltu mig í 1. sæti eða ekki? — Ef ekki, þá hef ég engan áhuga á þér og þínum skoðunum á því hvernig listi flokksins er skipaður.“ Andrés segir jafnframt: „Hann um það, en ég held að þetta sé einstaklega misráðið örþrifaráð hjá Halla, því jafnvel þó þetta herbragð lukkist þá hefur hann veikt umboð sitt. Það eitt, að hann grípi til þess á lokametrunum, bendir hins vegar til þess að hann meti stöðu sína svo tæpa, að hann hafi engu að tapa.“ Hættuspil Haralds Andrés segir merg máls þó þann að stjórnmálamenn sem vilji setja kjósendum afarkosti, misskilji algerlega samband sitt við umbjóðendur. „Snúa því á haus og telja sig þess umkomna að segja kjósendum fyrir verkum. Það er óklókt, mikið hættuspil raunar, því nema þar sé á ferð einhver einstakur leiðtogi og landsfaðir láta kjósendur slíkt ávallt sem vind um eyru þjóta og refsa frambjóðendum oftar en ekki fyrir glöpin.“ Brynjar fellst á þetta að hluta til, segir þarna réttmæt sjónarmið en segir á móti að ekki sé um neitt nýtt að ræða hjá Haraldi og menn séu ekki bundnir af niðurstöðu prófkjörs. Heitar umræður geysa um þessi mál á Facebooksíðu Brynjars.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir Þórdís og Haraldur etja kappi í Norðvesturkjördæmi Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi stendur nú yfir og því lýkur á laugardaginn, 19. júní. Fyrri dagur prófkjörs er í dag en Norðvesturkjördæmi er síðasta kjördæmið til þess að halda prófkjör fyrir komandi Alþingiskosningar. 16. júní 2021 14:31 Haraldur þiggur ekki annað sæti ef hann tapar oddvitaslagnum Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, mun ekki þiggja annað sæti á lista flokksins í kjördæminu ef hann tapar baráttunni um oddvitasætið við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í prófkjöri flokksins um næstu helgi. 15. júní 2021 17:51 Haraldur hissa á viðbrögðum Sjálfstæðiskvenna Viðbrögð Sjálfstæðiskvenna við yfirlýsingu Haraldar Benediktssonar ,um að hann muni ekki taka sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hljóti hann ekki kjör í oddvitasæti, komu Haraldi í opna skjöldu. Hann segist ekki hafa leynt því að hann hyggist ekki sitja á listanum beri Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sigur úr bítum í oddvitabaráttunni. 16. júní 2021 11:12 Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Mette boðar óvænt til kosninga Erlent Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Innlent Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Erlent Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Innlent Vilja borgarlest í stað borgarlínu Innlent Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Innlent Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Innlent Háskólinn lagði stúdenta Innlent Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Innlent Fleiri fréttir Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Gísli Rafn lætur af störfum hjá Rauða krossinum Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Viðreisn býður í fyrsta skipti fram á Akureyri Vonbrigði með verðbólgutölurnar og snjómokstur olli tjóni Háskólinn lagði stúdenta Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði Vilja borgarlest í stað borgarlínu Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Bein útsending: Þróun og horfur á vinnumarkaði Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Tína rusl til að komast á Reyki Trausti vill snúa aftur Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Rúta lenti utan vegar Ráðaleysi, viðvörun og hetjusaga Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Enginn meðalmaður eða meðalkona til í alvörunni Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Sjá meira
Þórdís og Haraldur etja kappi í Norðvesturkjördæmi Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi stendur nú yfir og því lýkur á laugardaginn, 19. júní. Fyrri dagur prófkjörs er í dag en Norðvesturkjördæmi er síðasta kjördæmið til þess að halda prófkjör fyrir komandi Alþingiskosningar. 16. júní 2021 14:31
Haraldur þiggur ekki annað sæti ef hann tapar oddvitaslagnum Haraldur Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, mun ekki þiggja annað sæti á lista flokksins í kjördæminu ef hann tapar baráttunni um oddvitasætið við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í prófkjöri flokksins um næstu helgi. 15. júní 2021 17:51
Haraldur hissa á viðbrögðum Sjálfstæðiskvenna Viðbrögð Sjálfstæðiskvenna við yfirlýsingu Haraldar Benediktssonar ,um að hann muni ekki taka sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hljóti hann ekki kjör í oddvitasæti, komu Haraldi í opna skjöldu. Hann segist ekki hafa leynt því að hann hyggist ekki sitja á listanum beri Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sigur úr bítum í oddvitabaráttunni. 16. júní 2021 11:12