Föðmuðu mótherja eftir að hafa jafnað á Selfossi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2021 09:00 Emma Checker vissi ekki hvað á hana stóð veðrið þegar Stjörnukonur föðmuðu hana eftir að hafa jafnað í 1-1. stöð 2 sport Skondið atvik var í leik Selfoss og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild kvenna á laugardaginn. Selfyssingar komust yfir með marki Önnu Maríu Friðgeirsdóttur á 32. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik. Á 52. mínútu jafnaði nýsjálenska landsliðskonan Betsy Hassett þegar hún rak smiðshöggið á laglega sókn. Betsy fagnaði með samherjum sínum og Emmu Checker, leikmanni Selfoss, sem lenti óvænt í faðmlögum við glaðar Stjörnukonur. Henni var ekki skemmt og losaði sig frá Garðbæingum. Markið og atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan, á 03:20. Skömmu eftir að hafa lent í fagnaðarlátum Stjörnukvenna fékk Emma gult spjald fyrir mótmæli eftir að hafa ekki fengið vítaspyrnu sem hún vildi fá. Emma gat þó leyft sér að brosa í leikslok því Selfoss vann 3-1 sigur. Unnur Dóra Bergsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu tvö mörk með þriggja mínútna millibili eftir rúman klukkutíma. Selfoss er með fullt hús stiga og markatöluna 8-1 á toppi Pepsi Max-deildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Þrótti í Laugardalnum á miðvikudaginn.
Selfyssingar komust yfir með marki Önnu Maríu Friðgeirsdóttur á 32. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik. Á 52. mínútu jafnaði nýsjálenska landsliðskonan Betsy Hassett þegar hún rak smiðshöggið á laglega sókn. Betsy fagnaði með samherjum sínum og Emmu Checker, leikmanni Selfoss, sem lenti óvænt í faðmlögum við glaðar Stjörnukonur. Henni var ekki skemmt og losaði sig frá Garðbæingum. Markið og atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan, á 03:20. Skömmu eftir að hafa lent í fagnaðarlátum Stjörnukvenna fékk Emma gult spjald fyrir mótmæli eftir að hafa ekki fengið vítaspyrnu sem hún vildi fá. Emma gat þó leyft sér að brosa í leikslok því Selfoss vann 3-1 sigur. Unnur Dóra Bergsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu tvö mörk með þriggja mínútna millibili eftir rúman klukkutíma. Selfoss er með fullt hús stiga og markatöluna 8-1 á toppi Pepsi Max-deildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Þrótti í Laugardalnum á miðvikudaginn. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild kvenna UMF Selfoss Stjarnan Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Körfubolti Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Fótbolti Fleiri fréttir Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings