Hér eru fjögur atriði sem skipta miklu máli við val á starfi og vinnustað.
1. Vinnustaðurinn: Gildin, menningin
Það er gott og blessað að þiggja starf til þess eins að geta framfleytt sér. Við þurfum öll á því að halda. Stundum er markmiðið okkar jafnvel að ráða okkur bara tímabundið í starf, svona þar til annað tækifæri gefst.
En hver svo sem ástæðan okkar er, er gott fyrir okkur að máta okkur við vinnustaðinn. Dæmi:
- Telur þú að þessi vinnustaður samræmist þínum gildum? Hvaða gildi eru áberandi í ásýnd fyrirtækisins?
- Hvernig hefur Covid haft áhrif á vinnustaðinn og þann geira sem starfsemin byggir á?
- Er þetta vinnustaður sem er líklegur til að leggja áherslu á þróun og vöxt starfsmanna sinna?
Eitt besta ráðið til að kynna sér málin er að tala við einhvern sem starfar á vinnustaðnum. Þannig að ef þú mögulega þekkir einhvern sem þar starfar (eða þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem þar starfar), þá getur það verið vel þess virði að hafa samband við viðkomandi og fá smá upplýsingar.
2. Yfirmaðurinn í atvinnuviðtalinu
Ímyndum okkur að þú komist í atvinnuviðtal og að þar hittir þú fyrir þann sem stýrir sviðinu, deildinni eða fyrirtækinu. Að sjálfsögðu leggur þú þig allan fram við að mælast sem best fyrir.
En það er líka ágætt að velta því fyrir sér hvernig þér finnst yfirmaðurinn virka á þig. Hvernig voru samskiptin ykkar í milli og hvernig fannst þér nærveran vera?
Hvaða upplýsingar gaf stjórnandinn um sínar stjórnunarhætti? Til dæmis varðandi upplýsingafundi með starfsfólki og fleira. Er þetta stjórnandi sem er líklegur til að vera með nefið ofan í öllu hjá starfsfólki sínu eða er þetta stjórnandi sem er líklegur til að treysta starfsfólkinu sínu til að vinna sín verk vel?
Ef þú hefur samband við viðkomandi í gegnum tölvupóst, er líka ágætt að meta hvernig viðkomandi stjórnandi svarar þér. Barst svarið seint og illa? Eða fékkstu kurteisislega og uppbyggilegt svar frekar snemma? Hvernig virkaði stjórnandinn á þig í þessum rafrænu samskiptum?
3. Þinn starfsframi
Rannsóknir Gallup í Bandaríkjunum hafa sýnt að ein helsta ástæða þess að fólk skiptir um starf, er að það sér ekki tækifærin á vinnustaðnum til að vaxa eða þróast í starfi.
Hér er því gott að velta því fyrir sér með hvernig þú telur að starfið muni nýtast þér í framtíðinni, hvort heldur sem er á ferilskránni þinni fyrir næstu störf eða til að vaxa og þróast sem starfsmaður.
Er þetta til dæmis líklegur vinnustaður til að leggja áherslu á þjálfun starfsfólks þannig að þú lærir eitthvað nýtt?
Er þetta vinnustaður sem þér mun líklegast líða vel á? Því vinnan er svo stór hluti af lífinu okkar að það að líða vel í vinnunni, hefur áhrif á allt í okkar lífi. Ekki aðeins fjárhaginn.
4. Þú og vinnustaðurinn
Við erum ólík að eðlisfari. Sum okkar þrífast best í öryggi og rútínu á meðan aðrir þrífast best í starfi þar sem álagstoppar eru reglulegir, möguleg yfirvinna, hraðar breytingar og margt óvænt getur gerst.
Að velja rétta starfið byggir því á meiru en að máta sig aðeins við það hvort við uppfyllum hæfniskröfur samkvæmt auglýsingu um tiltekið starf.
Við þurfum að vera viss um að vinnustaðurinn og starfið falli einnig að því hvernig við erum sem einstaklingar og í hvers konar umhverfi okkur líður best í.