Aron Kristjáns fer á Ólympíuleikana Sindri Sverrisson skrifar 24. mars 2021 15:28 Aron Kristjánsson er þjálfari Hauka en mun jafnframt stýra Barein á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar. vísir/vilhelm Aron Kristjánsson, þjálfari toppliðs Hauka í Olís-deild karla í handbolta, verður einn þeirra íslensku þjálfara sem fara á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar.
Aron hefur verið ráðinn þjálfari Barein á nýjan leik og tekur við starfinu af Halldóri Jóhanni Sigfússyni, þjálfar Selfoss, sem stýrði Barein til 21. sætis á HM í Egyptalandi í janúar. Aron tók við Barein árið 2018 og kom liðinu á Ólympíuleikana í Tókýó, en hætti svo þjálfun liðsins fyrir ári síðan til að einbeita sér að sínu nýja starfi sem þjálfari Hauka. Ólympíuleikunum var hins vegar frestað um eitt ár, fram í júlí í sumar, og nú er ljóst að Aron fer á leikana eftir allt saman. Frá þessu er greint á Twitter-síðu handknattleikssambands Bareins. pic.twitter.com/xk6MPp0K5P— Bahrain Handball (@bahrainhand) March 21, 2021 Alls verða því fjórir íslenskir handboltaþjálfarar á Ólympíuleikunum í Tókýó. Alfreð Gíslason komst á dögunum þangað með þýska karlalandsliðið og Þórir Hergeirsson með norska kvennalandsliðið. Dagur Sigurðsson þjálfar svo heimamenn í karlalandsliði Japans.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Olís-deild karla Haukar Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hrafnhildur til starfa hjá Sundsambandi Íslands Sport Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira