Svæðinu við gosið lokað vegna gasmengunar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. mars 2021 06:29 Gasmengun á svæðinu er komin yfir hættumörk og er mjög hættulegt að vera við gosið nú. Vísir/Vilhelm Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á gossvæðinu í Geldingadal og er mælingin komin upp fyrir hættumörk. Svæðið við gosstaðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lokun að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum. Í tilkynningunni segir jafnframt að mjög hættulegt sé að nálgast gosið eins og er. Tilkynning almannavarna: Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á svæðinu og er mælingin komin upp fyrir hættumörk. Svæðið við gos staðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lokun. Mjög hættulegt er að nálgast gosið eins og er. Mjög slæmt veður var á gosslóðum í nótt og margir sem lentu í hrakningum á leið sinni til baka af gosslóðum og nokkrir sem villtust og leita þurfti að. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Grindavík og fólk flutt þangað áður en það gat haldið áfram til síns heima. Gul viðvörun er í gildi á Suðurnesjum og þar með á gossvæðinu. Það er ekkert útivistar- eða ferðaveður að því er segir á vef Veðurstofu Íslands þar sem spáð er suðvestan hvassviðri eða stormi. Hviður geta farið í allt að þrjátíu metra á sekúndu og þá er spáð slyddu eða snjóéljum og slæmu skyggni. Viðvörun Veðurstofunnar: „Suðvestan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, hvassast á Reykjanesi síðdegis. Byljótt og dimm slyddu eða snjóél og slæmt skyggni, hviður um 30 m/s. Ekkert útivistarveður.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Eldgos í Fagradalsfjalli Almannavarnir Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira
Svæðið við gosstaðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lokun að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum. Í tilkynningunni segir jafnframt að mjög hættulegt sé að nálgast gosið eins og er. Tilkynning almannavarna: Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á svæðinu og er mælingin komin upp fyrir hættumörk. Svæðið við gos staðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lokun. Mjög hættulegt er að nálgast gosið eins og er. Mjög slæmt veður var á gosslóðum í nótt og margir sem lentu í hrakningum á leið sinni til baka af gosslóðum og nokkrir sem villtust og leita þurfti að. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Grindavík og fólk flutt þangað áður en það gat haldið áfram til síns heima. Gul viðvörun er í gildi á Suðurnesjum og þar með á gossvæðinu. Það er ekkert útivistar- eða ferðaveður að því er segir á vef Veðurstofu Íslands þar sem spáð er suðvestan hvassviðri eða stormi. Hviður geta farið í allt að þrjátíu metra á sekúndu og þá er spáð slyddu eða snjóéljum og slæmu skyggni. Viðvörun Veðurstofunnar: „Suðvestan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, hvassast á Reykjanesi síðdegis. Byljótt og dimm slyddu eða snjóél og slæmt skyggni, hviður um 30 m/s. Ekkert útivistarveður.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á svæðinu og er mælingin komin upp fyrir hættumörk. Svæðið við gos staðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lokun. Mjög hættulegt er að nálgast gosið eins og er. Mjög slæmt veður var á gosslóðum í nótt og margir sem lentu í hrakningum á leið sinni til baka af gosslóðum og nokkrir sem villtust og leita þurfti að. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Grindavík og fólk flutt þangað áður en það gat haldið áfram til síns heima.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Eldgos í Fagradalsfjalli Almannavarnir Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira