Bann við hjónaböndum samkynja para stangast á við stjórnarskrá Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2021 13:36 Litið er á dóminn sem féll í Sapporo sem táknrænan sigur fyrir aðgerðasinna hinsegin fólks í Japan. AP/Yohei Fukai Dómstóll í Japan hefur dæmt að það stangist á við stjórnarskrá landsins að hjónabönd samkynja para hafi enn ekki verið heimiluð af hálfu hins opinbera.
BBC segir frá því að stjórnarskrá Japans skilgreini hjónaband á þann veg að það eigi við um „bæði kyn“. Héraðsdómstóll í Sapporo hefur hins vegar nú túlkað lögin á þann veg að núgildandi reglur svipti samkynja pörum stjórnarskrárvarinn rétt til jafnréttis. Litið er á dóminn sem táknrænan sigur fyrir aðgerðasinna hinsegin fólks. Japan er eina ríkið innan ríkjahóps G7 þróaðra ríkja þar sem hjónabönd samkynja para eru ekki heimiluð. Dómsmálið er liður í röð dómsmála sem hópur samkynja para rak fyrir fjölda dómstóla víðs vegar um landið þar sem farið er fram á miskabætur vegna andlegs tjóns. Dómstóllinn í Sapporo hafnaði kröfu stefnenda um miskabætur upp á milljón jena, um 1,2 milljónir íslenskra króna, fyrir að hafa verið neitað um sömu réttindi og gagnkynhneigð pör. Dómstóllinn dæmdi þó að með því að neita samkynja pröum um að ganga í hjónaband væri verið að brjóta stjórnarskrá.
Japan Hinsegin Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira