Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð Birgir Olgeirsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 27. febrúar 2021 12:15 Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur hefur unnið að mati á jarðvá á Reykjanesskaga undanfarin ár. Vísir/vilhelm Líklegustu eldgosasvæði vegna skjálftahrinunnar á Reykjanesi eru talin suður af Keili og í áttina að Þorbirni. Þetta kemur fram í spá Eldfjallafræði og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð en gæti flætt yfir Reykjanesbraut.
Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur skoðað eldgosavá á Reykjanesskaga frá árinu 2001. Hópurinn birti á Facebook í gær breytta eldsuppkomuspá ásamt spá um hraunflæðilíkur sem byggð er á rannsóknum á Reykjanesi í gegnum árin að viðbættum þeim atburðum sem áttu sér stað í dag. Spáin sýnir líklegustu leiðir sem hraun myndi flæða um miðað við uppkomu goss á ákveðnum stöðum. „Við notum jarðfræðilegar upplýsingar um fyrri eldvirkni á svæðinu, sem sagt skoðum hvar hefur gosið á fyrri tímum og út frá aldri þá fá þessar gosstöðvar mismunandi vægi og síðan tökum við tillit til sprungna. Eins tökum við inn í þá mynd fyrri sögu þannig að við getum búið til kort sem segir okkur hvar eru líklegustu staðir að eldsupptök verði á,“ sagði Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur sem er í náttúruvárhópnum. Um langtímaspá er að ræða og byggir hún á jarðfræðilegum upplýsingum sem ná þúsundir ára aftur í tímann. „Til að fá fram líklegustu spá eftir röð atburða sem voru í dag þá bætum við skjálftavirkninni sem er núna í gangi inn í sviðsmyndina og þá þrengir hún líklegustu upptakasvæði og svo keyrum við módelið og notum hæðarlíkan til að hjálpa okkur við að sjá hver eru líklegustu flæðileiðir hrauna miðað við það að eldur komi upp á þessum svæðum.“ Hvar er líklegasta upptakasvæðið? „Eins og staðan er í dag þá er það í kringum Keili og í áttina að Þorbirni og á því svæði,“ sagði Þorvaldur. Eins er möguleiki að eldur komi upp í Trölladyngju samkvæmt færslu hópsins frá því í gær. Hraun gæti jafnvel runnið tugi kílómetra Hvað áætlið þið að hraunið nái langa leið ef af gosi verður? „Það fer eftir stærð gossins. Eftir því sem að gosið er öflugra því lengra fer hraunið.“ „Miðað við þá þekkingu sem við höfum í dag þá eru líklegustu gosin sem myndu verða á Reykjanesi kannski með framleiðni upp á sirka 300 rúmmetra á sekúndu. Þessi hraun myndu fara einhverja kílómetra jafnvel tugi kílómetra á endanum en akkúrat hvað þau þekja stórt svæði - það fer eftir því hver framleiðni gossins yrði, hversu lengi gosið stendur og svo hvar gosið er,“ sagði Þorvaldur. Byggðasvæði sleppa vel samkvæmt spánni Eins og staðan er í dag þá spáir hópurinn hraunflæði á norðanverðu Reykjanesi og að það muni ekki ógna byggð. „Miðað við það sem við erum að setja þarna fram þá sleppa byggðasvæði vel miðað við það sem við erum að spá fyrir um og í sumum tilfellum myndi hraunið fara beint út í sjó og taka kannski einhverja vegi en minni hætta á að það fari í byggð.“ Stórt gos við Fagradalsfjall, þar sem mesta skjálftavirknin hefur verið, og við Trölladyngju gæti ógnað Keflavíkurflugvelli og byggð í Vogum. „Það er möguleiki en eins og ég segi til að slíkt gerist þá þarf gosið að ná ákveðinni stærð. Við erum ekkert að segja neitt um það við erum bara að segja hvaða leiðir líklegast er að hraunið myndi flæða,“ Engar vísbendingar um kvikusöfnun Páll Einarsson sagði í samtali við fréttastofu í morgun að engar vísbendingar væru um kvikusöfnun á svæðinu. „Jafnvel þó það komi gos þá eru engar líkur á því að það verði neitt stórgos. Gos á Reykjanesskaga eru yfirleitt frekar lítil og meinlaus þannig við erum ekki að tala um neinar hamfarir. Við skulum hafa það fast í huga,“ sagði Páll. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að sú sviðsmynd sem dregin er upp í spá náttúruváhópsins sé ein þeirra sviðsmynda sem horft sé til hjá Almannavörnum. Hann segir að fyrir nokkrum árum hafi verið gerðar tímamælingar hvað varða rýmingar á svæðinu. Þá sé Suðurstrandavegur einnig leið af Reykjanesskaga. „Þannig að það er ólíklegt að þær lokist báðar. Svo þarf að hafa í huga að það tekur svolítinn tíma fyrir hraun að renna þessa vegalengd. Þannig að þetta gerist ekki bara á einhverjum örfáum klukkutímum, en þetta er hluti af því sem við þurfum að vera vakandi fyrir,“ segir Víðir.
Jarðhræringar á Reykjanesi Eldgos og jarðhræringar Almannavarnir Grindavík Vogar Tengdar fréttir Hætta á að hraunstraumar gætu lokað Reykjanesbraut Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að sú sviðsmynd sem dregin er upp í spá hóps á vegum Háskóla Íslands, um að ef gjósa tæki á Reykjanesskaga myndi hraun flæða um miðjan skagann, sé ein þeirra sviðsmynda sem horft sé til hjá Almannavörnum. 27. febrúar 2021 10:51 Sviðsmyndirnar vegna skjálftanna margar og misalvarlegar Jarðeðlisfræðingur segir margar sviðsmyndir í stöðunni þegar horft er á framhaldið. Engar vísbendingar eru um kvikusöfnun en ef af gosi verður býst hann ekki við því að það verði stórt. 27. febrúar 2021 10:30 Sprungur í Suðurstrandavegi afleiðing skjálfta Vegagerðin varar við sprungum sem myndast hafa í Suðurstrandarvegi á Reykjansskaga, vestan við Vigdísarvallaveg. Sprungurnar hafa líklega myndast í kjölfar jarðhræringa sem hafa verið á svæðinu. 27. febrúar 2021 10:28 Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fleiri fréttir Snjóflóð féllu á Vestfjörðum og Tröllaskaga Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Sjá meira
Hætta á að hraunstraumar gætu lokað Reykjanesbraut Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að sú sviðsmynd sem dregin er upp í spá hóps á vegum Háskóla Íslands, um að ef gjósa tæki á Reykjanesskaga myndi hraun flæða um miðjan skagann, sé ein þeirra sviðsmynda sem horft sé til hjá Almannavörnum. 27. febrúar 2021 10:51
Sviðsmyndirnar vegna skjálftanna margar og misalvarlegar Jarðeðlisfræðingur segir margar sviðsmyndir í stöðunni þegar horft er á framhaldið. Engar vísbendingar eru um kvikusöfnun en ef af gosi verður býst hann ekki við því að það verði stórt. 27. febrúar 2021 10:30
Sprungur í Suðurstrandavegi afleiðing skjálfta Vegagerðin varar við sprungum sem myndast hafa í Suðurstrandarvegi á Reykjansskaga, vestan við Vigdísarvallaveg. Sprungurnar hafa líklega myndast í kjölfar jarðhræringa sem hafa verið á svæðinu. 27. febrúar 2021 10:28