„Það var ausandi rigning, ausandi. Ég ætlaði að mynda og það var maður þarna að ganga hjá bátahúsunum. Það var ekki séns að mynda hann því að linsurnar blotnuðu allar. Þannig að ég fór inn í bíl og tek mynd af honum í gegnum framrúðuna.“

Maðurinn bauð Ragnari inn til sín í kaffi þar sem þeir spjölluðu saman um heima og geima. RAX tók nokkrar myndir af honum og meðal annars eina mynd þar sem hann sést vera að raka sig.
„27 árum seinna kom ég þarna aftur og ætlaði að skoða mig um. Ég fór að keyra þarna um húsið sem hann átti heima. Það hvarflaði ekki að mér að hann væri enn á lífi,“ segir RAX.
„Því þarna áður var hann svolítið lasinn og gekk um með staf. Svo þegar ég er að fara kemur þarna bíll rennandi í hlað. Ég hinkra aðeins til að sjá hver kæmi út úr bílnum.“
Þá var það hann sjálfur og ég var mjög hissa. Hann var ekki lengur með einn staf heldur tvo.
Maðurinn brosti þegar hann þekkti RAX aftur og bauð honum inn til sín í kaffi þar sem hann sagði honum ýmsar sögur.
„Komdu inn í kaffi og þú getur tekið aftur mynd af mér þegar ég raka mig.“
Frásögnina alla má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir og er þátturinn Ólafur í Sandey um þrjár mínútur.
Rax hefur fangað mannlífið í Færeyjum í fjölmörgum ferðum sínum þangað í gegnum árin. Hér fyrir neðan er hægt að sjá brot af fyrri þáttum þar sem manneskjan í allri sinni dýrð er í aðalhlutverki.

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.