Viðskipti innlent

Bein út­sending: Úr­slit Ís­lensku á­nægju­vogarinnar

Eiður Þór Árnason skrifar
Uppskeruhátíðin fer fram á Grand Hótel en vegna fjöldatakmarkana verður einungis einum aðila frá þeim fyrirtækjum sem eru efst á sínum markaði boðið á athöfnina.
Uppskeruhátíðin fer fram á Grand Hótel en vegna fjöldatakmarkana verður einungis einum aðila frá þeim fyrirtækjum sem eru efst á sínum markaði boðið á athöfnina. Samsett

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2020 verða kynntar í dag og viðurkenningar veittar þeim fyrirtækjum sem mælast efst á sínum markaði. Viðburðurinn hefst klukkan 8:30 og verður sýnt frá athöfninni í beinni útsendingu hér á Vísi.

Er þetta í 22. sinn sem Íslenska ánægjuvogin er birt. Markmiðið verkefnisins er að vinna samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina og öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana svo sem ímynd, mat á gæðum og þjónustu. 

Framkvæmd er í höndum Zenter rannsókna og einkennir það ánægjuvogina að enginn veit hvenær mælingin fer fram né hvaða markaðir eru mældir hverju sinni.

Dagskrá

8:30 Fundarsetning

Fundarstjóri er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi og stjórnarformaður Íslensku ánægjuvogarinnar.

08:30 Kynning á helstu niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2020

Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Zenter, kynnir niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2020, m.a. niðurstöður einstakra fyrirtækja og markaða og breytingar frá fyrri árum.

08:45 Viðurkenningar Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2020 veittar

Afhent verður viðurkenningarskjal til þeirra fyrirtækja sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina á viðkomandi markaði. Einnig verða veittar viðurkenningar til þeirra aðila sem skora hæst í hverjum flokki.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×