Tinna Brá er tveggja barna móðir og hefur verið í fyrirtækja og verslunarrekstri síðan hún opnaði verlsunina Hrím fyrir tíu árum síðan. Hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og er með BA gráðu í arkitektúr.
Tinna segist vera haldin mikilli ferðaþrá þessa dagana og hún horfi með eftirvæntingu til sumarsins.
„Ég er algjör ferðafíkill og lifi í voninni að geta stungið af til útlanda án þess að þurfa að fara í fimm daga sóttkví.”
Framundan segir Tinna vera miklar breytingar í lífinu en hún horfi björtum augum á framtíðina og hlakki til að takast á við nýjar áskoranir og tækifæri.
Ég hlakka mikið til að stunda og finna ný áhugamál en ég er mjög spennt að geta gefið mér tíma til dæmis í hjólreiðar, veiði og skíði núna í vetur. Þegar maður er barnlaus í viku þá líður mér eins og ég hafi töluvert fleiri tíma í sólarhringnum.
Í viðtalsliðnum Boneorðin 10 deilir Tinna því með lesendum hvaða persónueiginleikar heilla hana upp úr skónum og hvaða eiginleikar heilla alls ekki.
ON:
- Tónlist – Ég hlusta mjög mikið á tónlist og tengi mun betur við fólk sem hefur samskonar tónlistarsmekk og ég. Tónlist getur haft svo mikil áhrif á daginn minn. Ég var alltaf smá strákastelpa sem barn og unglingur og elskaði að hanga með strákunum að hlusta á þungt rokk og heillast enn af þannig tónlist. Svo er ég heppin að eiga svalan pabba sem var alltaf með góða tónlist í gangi, enda er ég með allar plöturnar hans í dag.
- Tjáning –Mér finnst fátt eins heillandi og þegar fólk er duglegt að hrósa og segja eitthvað fallegt við hvort annað. Karlmenn sem tjá tilfinningar sínar og opna sig eru töff. Svo er hreinskilni erfið en sigrar alltaf.
- Tattú – Það er bara sexí! Elska líka öll mín tattú.
- Lífsgleði – Lífið er stutt, það er svo margt meira spennandi en að hanga uppi í sófa. Elska fólk sem er til í skyndiákvarðanir og eru til í að stökkva með mér í spennandi en notaleg ævintýri. Að stunda útivist og fara á tónleika veitir mér mikla lífsgleði.
- Góður matur: Að fara út að borða, elda eitthvað geggjað eða bara ræða mat og drykki er eitthvað sem ég elska vandræðalega mikið.
OFF:
- Símanotkun – Þegar menn geta ekki gengið án þess að horfa á símann sinn, ekki keyrt nema kíkja reglulega á símann og fleira finnst mér alveg OFF.
- Mont – þegar men eru sífellt að monta sig á því sem þeir eru að gera getur orðið mjög þreytt. Að þeir geri allt betur en aðrir og þess háttar.
- Að stunda enga hreyfingu- Hvernig er hægt að stunda enga hreyfingu? kíktu í sund, ræktina og helst á boxæfingu og ég kem með!
- Umgengni og sóðaskapur- Slæm umgengni á heimilum og drasl getur verið þreytandi til lengdar.
- Framkvæmdaleysi - Að vera týpan sem lætur sig dreyma en gera aldrei neitt í málunum. Hættu að láta þig dreyma og gerðu það sem þig langar til að gera. Það er ekkert eins heillandi og fólk sem æðir í hlutina og hendir sér í ævintýrin.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram prófíl Tinnu hér.