Lífið

Baldur frumsýnir nýtt myndband við lag sem fjallar um ástandið í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baldur Dýrfjörð er efnilegur tónlistarmaður. 
Baldur Dýrfjörð er efnilegur tónlistarmaður. 

Tónlistamaðurinn Baldur Dýrfjörð leiddist töluvert í samkomubanni og ákvað hann því að semja lag sem fjallar svolítið um hvernig hið daglega líf hefur breyst á þessum fordæmalausu tímum.

Lagið fjallar í raun um hvernig það sé að hanga heima hjá sér, láta sér leiðast og hugleiðingar tengt því.

Baldur frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið á Vísi en lagið ber nafnið Gleymmérei.

Hér að neðan má sjá myndbandið en Baldur tók á sínum tíma þátt í Ísland Got Talent þar sem hann sló rækilega í gegn á fiðlu.

Klippa: Baldur Dýrfjörð - Gleymmérei

Hér að neðan má sjá frammistöðu Baldurs í Ísland Got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×