Landspítalinn og óábyrg yfirstjórn sóttvarna Vilhelm Jónsson skrifar 25. mars 2020 07:00 Á sama tíma og verið er að setja útgöngubann og aðrar þrengingar til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar vítt og breitt um heiminn hefur sóttvarnarteymið haft of oft fram að færa ótrúverðugan fréttaflutning. Útbreiðsla veirunnar fékk að fara úr böndunum og höfuðástæðan er að ferðamenn, sem og Íslendingar, fengu að streyma til og frá sýktum löndum of lengi ásamt að of seint var hugað að útgöngubanni. Ef illa fer er full ástæða til að íhuga hvernig hefur verið staðið að verki og óboðlegt að forkólfar geti komið fram með hvaða vitleysu sem er í boði bitlausra fréttamanna. Það er forkastanlegt að sóttvarnarlæknir hafi leyft sér að láta í veðri vaka að 60% þjóðarinnar þyrftu að sýkjast til að ráða niðurlögum Covid-19 varanlega, og hvað búi að baki gjörðum hans. Út um allan heim er verið að leita að mótefni til að ráða niðurlögum veirunnar og þess vegna er ærin ástæða að kaupa sér tíma. Fólk er barið til hlýðni til að sporna við útbreiðslu veirunnar, og ef það hlýðir ekki tilmælum mætir það mikilli hörku. Heilbrigðisyfirvöld höfðu yfir tvo mánuði til að undirbúa sig fyrir þennan skell án þess að aðhafast nægjanlega í ljósi þess hversu illvægur sjúkdómurinn er, í það minnsta var tíminn illa nýttur. Það er einnig forkastanlegt að þegar sóttvarnarlæknir var spurður í síðustu viku hver staðan væri varðandi öndunarvélar var fátt um svör, að vísu rættist eitthvað betur úr þeim vanda þegar Landspítalanum bárust vilyrði um 15 öndunarvélar að gjöf tveimur dögum síðar. Skortur á pinnum hefur orðið þess valdandi að þurft hefur að draga úr sýnatökum, sem getur vart talist eðlilegt í byrjun á jafn illvægum faraldri, og gefur til kynna óábyrgt verklag. Það er full ástæða til að athuga framangreint innkaupaferli þegar látið er liggja að ábyrgð liggi annars staðar, sem svo vekur furðu hversu illa hefur verið farið með takmarkaðar birgðir. Fólk út um allan heim er að reyna verja sig eftir bestu getu fyrir sýkingum, t.d. með maska, engu að síður leyfði sóttvarnarlæknir sér kynroðalaust þegar hann var spurður að tala niður notkun á hefðbundnum möskum, þar sem þeir væru óþarfir og kæmu að litlum notum, sem verður að teljast mjög ótrúverðugt. Að blanda saman sóttvarnaspítala og annarri starfsemi Landspítalans, eins og hefur átt sér stað undanfarin ár, er galið við að tryggja útbreiðslu á smitum, og örugglega við þær aðstæður sem hafa verið til staðar í Fossvogi. Breytt sóttvarnaraðstaða er eflaust mun betri en engu að síður vafasöm og býður upp á að stórslys geti orðið vegna smitleiða. Landspítalinn er rekinn á litlum afköstum þessar vikurnar (var nú ekki beysinn fyrir) vegna skorts á sjúkrateymi og óábyrgrar stjórnunar, og er þess vegna að valda fjölda sjúklinga óbætanlegum skaða. Þó svo að forstjóri Landspítalans státi sig þessa dagana að því að ástandið sé gjörbreytt, og engir sjúklingar á göngum og betra ástand á bráðamóttöku, sem er ekki í neinu samræmi við vandann þar sem flestallt er sett á bið. Ekki svo ósjaldan hefur komið fram á stöðufundum sóttvarnateymis síðustu vikur að gjörgæsla og önnur læknaþjónusta sé undirmönnuð og aðstöðuleysið bágborið. Heilbrigðisyfirvöld brugðust seint og illa við aðstöðuleysi sínu, sem kom berlega í ljós hjá forstjóra Landspítalans í síðustu viku, þegar hann nefndi að það hefði verið lyft grettistaki á síðustu 10 dögum til að koma upp sóttvarnaraðstöðu til hjúkrunar og gjörgæslu. Slík ummæli gefa fyllilega til kynna að það var ekki brugðist við fyrr en alltof seint. Almenningur hefur þurfti að berja á yfirvöldum til að heilbrigðisyfirvöld vöknuðu úr rotinu og í stað þess að vera í afneitun ætti landlæknisembættið að sýna sóma sinn og auðmýkt og biðja þjóðina afsökunar á óábyrgu háttarlagi sínu. Læknastéttin ætti einnig að íhuga andvara og kjarkleysi sitt að hafa ekki verið háværari eftir að hafa horft steinþegjandi á undanfarin ár hvernig komið er fyrir heilbrigðiskerfinu. Það er ekki nóg að sverja læknaeið og láta sig síðan litlu varða að heilbrigðiskerfið sé í molum vegna þess að yfirvöld eru ekki að standa sig. Holan við Hringbraut er glöggt dæmi um hvaða skrípaleikur á sér stað hjá yfirvöldum og löngu er orðið tímabært að stöðva framkvæmd, sem mun aldrei ljúka, þó svo að búið sé að moka tugum milljörðum framreiknað síðustu 20 ár í hítina. Það virðist loða við landann að sjá og skilja ekki í hvað stefni fyrir en of seint. Það er löngu orðið tímabært að stjórnvöld verði dregin til ábyrgðar hvernig heilbrigðiskerfinu hefur verið haldið í fjársvelti. Einnig er lágmarkskrafa að forstjóri Landspítalans sé hæfur til að stýra skútunni með vitrænum hætti, yfirklórið og kattarþvotturinn sem hann viðhafði varðandi úttekt á stofnuninni kom berlega í ljós eftir Svíaúttektina á bráðamóttöku spítalans. Þeir sem til þekkja, og hafa þurft að nýta sér þjónustu Landspítalans, er löngu orðið ljóst að litla sem enga þjónustu er að hafa um helgar og eftir kl. 16 virka daga, og slíkt hið sama á við um bráðamóttöku og heilsugæsluna þegar sjúklingar takast á við margra klukkustunda biðraðir. Eldri borgarar búa við sóttvarnir og einangrun mánuðum saman með þungbærari hætti en almenningur og það er ekki nóg að sóttvarnarteymið ítreki að við eigum að vera góð hvert við annað. Í það minnsta njóta þeir þess ekki sem dvelja á elli og hjúkrunarheimilum, og fjöldi annarra sem eiga um sárt að binda og eru ekki í návist við sína nánustu mánuðum saman, fari fram sem horfir. Eftir því sem núverandi ástand dregst á langinn eru verulega miklar líkur á að starfsfólk og aðrir sofni á verðinum og fari óvarlega, sem getur orðið dvalarheimilum aldraða og sjúkrastofnunum afdrifaríkt. Það er ekki nóg að tala og benda á að þjóðin sýni samhug og samkennd, verkin þurfa að tala og það strax, þó svo að kærleikur sé góðra gjalda verður. Drottinn blessar ekki alltaf alla sem skyldi. Svipan svíður en hún á líka að skera, og mun gera það enn frekar fari allt úr böndunum, ekki síst þegar fólk þarf að gjalda fyrir með lífi sínu. Það er löngu komið nóg af reiknilíkum og öðru háskólahjali, samanber að veirusmit eigi að vera í hámarki föstudaginn langa! Það vantar aðeins að nefna klukkan hvað til að fullkomna bullið. Þjóðin var dregin á asnaeyrum og fram af bjargbrúninni eins og blindir kjúklingar fyrir rúmum áratug fyrir tilverknað ábyrgðarlausra stjórnmálamanna, sem sitja enn þá við Austurvöll eins og illskeytt krabbamein, og það virðist ætla að endurtaka sig að ári. Í það minnsta hefur efnahagsleg velferð verið á niðurleið þó svo að Covid-19 hafi ekki verið til staðar. Þjóðin er búin að temja sér óábyrga hegðun og enginn axlar ábyrgð af gjörðum sínum, og þar við situr að fátt breytist til betri vegar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Vilhelm Jónsson Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar