Aston Villa fór illa með Crystal Palace manni færri Ísak Hallmundarson skrifar 26. desember 2020 16:51 Leikmenn Aston Villa voru magnaðir í dag. getty/Shaun Botterill Aston Villa vann sannfærandi 3-0 sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Heimamenn í Villa stjórnuðu leiknum allan tímann og voru mun betri þrátt fyrir að vera manni færri allan seinni hálfleik en Tyrone Mings fékk reisupassann undir lok fyrri hálfleiks. Bertrand Traoré kom Villa yfir á 5. mínútu leiksins þegar hann fylgdi á eftir skoti Ollie Watkins. Villa skapaði sér mun fleiri færi og hefði átt að vera tveimur til þremur mörkum yfir þegar Tyrone Mings fékk að líta rauða spjaldið. Það kom ekki að sök að vera manni færri, Kortney Hause tvöfaldaði forystu Aston Villa á 66. mínútu og tíu mínútum síðar skoraði Anwar El-Ghazi stórglæsilegt mark. 3-0 sigur Aston Villa staðreynd og hefðu mörkin getað verið mun fleiri. Villa hefur núna haldið marki sínu hreinu í fjórum leikjum í röð. Aston Villa er núna í sjötta sæti með 25 stig, en hefur spilað einum til tveimur leikjum minna en öll hin liðin í deildinni. Á sama tíma gerðu Fulham og Southampton markalaust jafntefli. Fulham er í 18. sæti með ellefu stig, en þetta var fjórða jafntefli liðsins í röð. Southampton er á meðan í 8. sæti með 25 stig.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira