Vålerenga með mikilvægan sigur á Rosenborg í Evrópubaráttunni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. desember 2020 19:01 Vålerenga fagnaði 1-0 sigri á Rosenborg í kvöld. Viðar Örn var ekki á skotskónum að þessu sinni. Vålerenga Viðar Örn Kjartansson, Matthías Vilhjálmsson og samherjar þeirra í Vålerenga unnu mikilvægan 1-0 sigur á Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði lið eru í baráttunni um sæti í Evrópudeildinni að ári.
Viðar Örn var eini Íslendingurinn sem tók þátt í leiknum en hann byrjaði að venju upp á topp hjá Vålerenga í kvöld. Matthías sat allan tímann á varamannabekknum, líkt og Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Rosenborg. Eina mark leiksins skoraði Aron Dønnum á 76. mínútu og þar við sat. Dino Islamović hafði nælt sér í sitt annað gula spjald undir lok fyrri hálfleiks og því voru gestirnir frá Rosenborg manni færri allan síðari hálfleikinn. Bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti og eru Vålerenga í frábærri stöðu eftir sigur kvöldsins. Liðið er nú í 3. sæti með 51 stig eftir 28 leiki. Rosenborg er í 4. sæti með 45 stig en á leik til góða. Sama má segja um Kristiansund sem eru í 5. sæti með 44 stig. Bodø/Glimt hefur nú þegar tryggt sér sigur í deildinni og þar með þátttöku í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta ári. Molde er öruggt með sæti í undankeppni Evrópudeildarinnar en þar á eftir eru Vålerenga, Rosenborg, Kristiansund, Viking og jafnvel Odds BK öll í baráttunni um síðustu tvö sætin sem gefa þátttökurétt í undankeppni Evrópudeidarinnar.
Fótbolti Norski boltinn Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Sjá meira