Ríkissaksóknari Namibíu sagður með Samherja í sigtinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. desember 2020 11:17 Vendingar í máli Samherja í Namibíu. Vísir/Sigurjón Martha Imalwa, ríkissaksóknari Namibíu, er sögð vera með íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Samherja í sigtinu í tengslum við rannsókn namibískra yfirvalda á meintum mútugreiðslum og spillingu þar í landi.
Þetta kemur fram í frétt Namibian Sun í morgun þar sem segir að Imalwa muni ákæra fyrirtækið fyrir hlut sinn í Fishrot-málinu svokallaða, líkt og það er orðað í frétt namibíska fjölmiðilsins. Fishrot-málið hefur í daglegu tali hér á landi gengið undir nafninu Samherjaskjölin, eftir að Kveikur fjallaði um málið í nóvember á síðasta ári. Enginn starfsmaður Samherja er nafngreindur í frétt Namibian Sun, einungis er talað um fyrirtækið Samherja. Í frétt Namibian Sun er vitnað í yfirlýsingu frá skrifstofu ríkissaksóknarans þar sem því er haldið fram að eina leiðin fyrir Samherja til að öðlast kvóta hafi verið að fara í kringum þær hefðbundnu leiðir sem um það gildi samkvæmt lögum í Namibíu. Í frétt Namibian Sun er einnig vísað í sömu tölur og sagt var frá í frétt RÚV í vikunni, það er að meintur ólöglegur ávinningur Samherja af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda, sé metinn á 547 milljónir namibíudollara, um 4,7 milljarða króna. Þessu hefur Samherji hafnað alfarið í yfirlýsingu á vef félagsins í gær sem birt var af tilefni fréttaflutnings RÚV um hinn meinta ávinning. Þar segir að ekki hafi verið tekið fram að sú fjárhæð sem tilgreind var feli í sér áætlaðar heildartekjur áður en skattar og gjöld hafi verið dregin frá. Ekkert hafi verið minnst á skatta, gjöld og annan rekstarkostnað. Þá bendir félagið á að útgerðin í Namibíu hefði þegar uppi var staðið, verið rekin með tapi á tímabilinu 2012-2018.
Samherjaskjölin Namibía Sjávarútvegur Tengdar fréttir Kyrrsetningu Heinaste aflétt og skipið selt Namibísk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu á togaranum Heinaste, sem kyrrsettur var þar í landi í nóvember 2019. Bréf um afléttingu kyrrsetningarinnar var undirritað í gær samhliða sölu á togaranum. 2. desember 2020 13:48 Meintur ólöglegur ágóði Samherja sagður 4,7 milljarðar Meintur ólöglegur ágóði sem Samherji fékk af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda er metinn á um 4,7 milljarða íslenskra króna. Ríkisútvarpið greinir frá og hefur upp úr beiðni sem namibískur saksóknari hefur lagt fram fyrir dómstól í Namibíu. 30. nóvember 2020 22:42 Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Kyrrsetningu Heinaste aflétt og skipið selt Namibísk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu á togaranum Heinaste, sem kyrrsettur var þar í landi í nóvember 2019. Bréf um afléttingu kyrrsetningarinnar var undirritað í gær samhliða sölu á togaranum. 2. desember 2020 13:48
Meintur ólöglegur ágóði Samherja sagður 4,7 milljarðar Meintur ólöglegur ágóði sem Samherji fékk af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda er metinn á um 4,7 milljarða íslenskra króna. Ríkisútvarpið greinir frá og hefur upp úr beiðni sem namibískur saksóknari hefur lagt fram fyrir dómstól í Namibíu. 30. nóvember 2020 22:42