Nýr og spennandi námskeiðsvefur hjá Alfreð Alfreð 2. desember 2020 11:46 Nýr námskeiðsvettvangur er kominn í loftið hjá Atvinnuvefnum Alfreð. Inni á síðunni er þegar að finna hátt í 70 námskeið frá öllum helstu fræðsluaðilum á Íslandi
Endurmenntun er ein af öflugustu lífæðum blómlegs atvinnulífs. Við þær óvenjulegu aðstæður sem nú hafa skapast í samfélaginu vilja margir nýta tímann til að bæta við sig þekkingu. Gott aðgengi að fjölbreyttri endurmenntun er lykilatriði og nú hefur nýr námskeiðsvettvangur hafið göngu sína hjá atvinnuvefnum Alfreð. Þar geta fyrirtæki og stofnanir sem sérhæfa sig í fræðslu og þjálfun komið þjónustu sinni á framfæri við þá fjölmörgu notendur vefsins sem eru að leita sér þekkingar. „Alfreð leggur metnað í að einfalda boðleiðir milli fólks og hugmyndin með námskeiðssíðunni er að búa til vettvang þar sem hver sem er getur tengst notendum Alfreðs beint og komið sínu námskeiði á framfæri," segir í tilkynningu frá Alfreð. Inni á síðunni er þegar að finna hátt í 70 námskeið frá öllum helstu fræðsluaðilum á Íslandi. Þar má meðal annars nefna námskeið frá Endurmenntun HA, Endurmenntun HÍ og Endurmenntun LBHÍ; auk námskeiða frá Opna háskólanum, Dale Carnegie, frami.is, Studyhax, KVAN, og Akademias. Námskeiðunum er raðað í flokka til að auðvelda notendum leitina að rétta námskeiðinu, allt eftir því hvaða hæfni og þekkingu þeir vilja bæta við sig. Fjölbreytnin er mikil og til dæmis eru á síðunni námskeið til að skerpa almenna tölvukunnáttu og læra á ýmis hagnýt forrit. Það getur komið sér vel að kunna að búa til vefsíðu eða vita hver fyrstu skrefin eru við stofnun eigin fyrirtækis. Á síðunni eru einnig námskeið sem nýtast utan vinnutíma eins og matreiðslunámskeið, heilsutengd námskeið og margt fleira. Notendur Alfreðs eru ekki einungis í leit að nýjum atvinnutækifærum, þeir vilja auka við sig þekkingu og hæfni og gæða þar með prófílinn sinn meira lífi. Með því að kynna þjónustu sína á Alfreð geta fyrirtæki tengt beint við eftirspurnina þar sem hún er mest.
Vinnumarkaður Mest lesið Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Atvinnulíf Ágreiningur í Peningastefnunefnd um síðustu vaxtalækkun Viðskipti innlent „Eru kannski á mörkunum í siðferðislegri markaðssetningu“ Viðskipti Mango opnar í Smáralind Viðskipti innlent Hægt að fækka veikindadögum með réttu raka- og hitastigi Viðskipti innlent „Hann bókstaflega argar á mig þangað til ég fer fram úr“ Atvinnulíf Milljarðaviðskipti í bönkunum í morgunsárið Viðskipti innlent Mikil eftirvænting á Hellu fyrir opnun Bæjarins bestu Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar hressilega Viðskipti innlent Funda með starfsmönnum Vélfags um framhaldið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira