Skaut á Real Madrid eftir sigurmark Bales: „Ætla að kíkja á heimasíðuna þeirra“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. nóvember 2020 10:01 José Mourino setti Gareth Bale inn á sem varamann á 70. mínútu gegn Brighton. Þremur mínútum síðar skoraði hann sigurmark Tottenham. getty/Tottenham Hotspur FC
José Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, gat ekki stillt sig um að skjóta á Real Madrid eftir að Gareth Bale skoraði sigurmark Spurs gegn Brighton, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í gær. Bale sneri aftur til Tottenham í haust á láni frá Real Madrid. Hann kom inn á sem varamaður gegn Brighton og tryggði Tottenham öll stigin þrjú þegar hann skallaði boltann í netið á 73. mínútu. Þetta var fyrsta mark Walesverjans fyrir Spurs í sjö ár. Þrátt fyrir að hafa unnið Meistaradeild Evrópu í fjórgang með Real Madrid virðist Bale ekki vera í neitt sérstaklega miklum metum þar á bæ og spilaði lítið með Madrídarliðinu á síðasta tímabili. „Þegar ég hef fimm mínútur ætla ég að fara á Safari og kíkja á heimasíðu Real Madrid og sjá hvað þeir segja,“ sagði Mourinho eftir leikinn í gær. Hann er auðvitað fyrrverandi stjóri Real Madrid en yfirgaf félagið 2013. Mourinho hrósaði Bale í hástert eftir leikinn gegn Brighton í gær. „Auðvitað er ég ánægður með Bale. Hann á þetta skilið. Hann veit að okkur þykir vænt um hann og við vitum að honum þykir vænt um okkur, liðið og Spurs. Hann passar fullkomlega í liðið. Hann er mjög rólegur, mjög klár.“ Tottenham er í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fjórtán stig, tveimur stigum á eftir toppliði Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira