Syngur um konuna sem fannst látin í Ísdalnum Tinni Sveinsson skrifar 2. október 2020 16:46 Snorri Helgason. Myndband við lagið Gleymdu mér.
Snorri Helgason hefur sent frá sér lagið Gleymdu mér. Það er hluti af sýningunni Útlendingurinn - Morðgáta, sem fjallar um ráðgátuna um konuna sem fannst látin í Ísdalnum í Noregi fyrir um hálfri öld síðan. Sýningin verður frumsýnd á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld. Útlendingurinn er skandinavískt raunsæisglæpadrama þar sem mál „Ísdalskonunnar“ er nálgast á frumlegan hátt og nýjar kenningar dregnar fram í dagsljósið. Friðgeir Einarsson og Snorri Helgason eru flytjendur í verkinu, Friðgeir er jafnframt höfundurinn og Snorri semur tónlistina. Þetta er annað verkið frá sama listræna teymi og setti upp verðlaunasýninguna Club Romantica, í þessum ráðgátuþríleik. Klippa: Gleymdu mér - Snorri Helgason Mál konunnar í Ísdalnum hefur á síðustu árum orðið eitt þekktasta óupplýsta lögreglumál Norðurlandanna. Nakið og illa brunnið lík fannst í stórgrýtisurð rétt utan við miðbæ Bergen. Allar vísbendingar um hver konan er höfðu verið fjarlægðar. Í áratugi hefur enginn náð að þoka málinu áfram. Vísir fjallaði ítarlega um málið í samstarfi við NRK fyrir nokkrum árum og má lesa þá umfjöllun í hlekknum hér fyrir neðan. „Ferlið að verkinu hófst þegar Friðgeir Einarsson flutti til Bergen, en hann heillast af ráðgátunni og gerir sitt besta til að upplýsa hana. En kannski ekki á þann hátt sem búast hefði mátt við. Friðgeir er hvorki lögreglumaður, né með reynslu af rannsóknarstörfum, en telur sig hafa ákveðna innsýn inn í hugsunarhátt konunnar. Hann er jú aðkomumaður, rétt eins og hún var,“ segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Leikstjórn er í höndum Péturs Ármannssonar. Brynja Björnsdóttir hannaði leikmynd og búninga. Pálmi Jónsson hannaði lýsingu og Þorbjörn Steingrímsson gerði hljóðmynd verksins.
Tónlist Leikhús Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira