Fótbolti

Suárez fer til Atlético Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luis Suárez skoraði í sínum síðasta leik fyrir Barcelona, 8-2 tapi fyrir Bayern München í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðasta mánuði.
Luis Suárez skoraði í sínum síðasta leik fyrir Barcelona, 8-2 tapi fyrir Bayern München í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðasta mánuði. getty/Rafael Marchante

Luis Suárez er genginn í raðir Atlético Madrid frá Barcelona. Félögin staðfestu þetta í gærkvöldi.

Suárez kemur til Atlético á frjálsri sölu frá Barcelona. Talið er að hann hafi skrifað undir tveggja ára samning við Atlético.

Úrúgvæinn kveður Barcelona formlega á blaðamannafundi á Nývangi í dag. Hann lék með Barcelona í sex ár og er þriðji markahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Ronald Koeman, nýr knattspyrnustjóri Barcelona, vildi ekki nota Suárez og því sá hann sæng sína upp reidda hjá félaginu. Suárez var nálægt því að fara til Juventus og svindlaði m.a. á ítölskuprófi til að flýta fyrir félagaskiptunum. Ekkert varð hins vegar af þeim.

Atlético endaði í 3. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og komst í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Suárez, sem er 33 ára, vann fjórtán titla sem leikmaður Barcelona og skoraði 198 mörk í 283 leikjum fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×