Fyrirliðinn með tvö fyrir Blika og Kristinn lagði upp í fyrsta leik Sindri Sverrisson skrifar 21. febrúar 2020 21:08 Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö í dag. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik í síðasta mánuði. vísir/bára
Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik þegar liðið vann Aftureldingu 3-1 í Lengjubikarnum í fótbolta í Mosfellsbæ í kvöld. Höskuldur, sem hefur verið fyrirliði Blika í vetur, skoraði fyrsta mark leiksins með skalla á 4. mínútu eftir að Blikar höfðu spilað hratt fram völlinn frá eigin marki. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Viktor Karl Einarsson svo af stuttu færi eftir sendingu yfir vörn Aftureldingar, eftir langa sókn Blika. Höskuldur skoraði svo seinna mark sitt á 18. mínútu, eftir fyrirgjöf Kristins Steindórssonar frá endamörkunum. Þetta var fyrsti leikur Kristins eftir að hann sneri aftur í Kópavoginn frá FH. Afturelding náði að klóra í bakkann með skallamarki eftir aukaspyrnu, skömmu fyrir leikslok, en þar við sat. Breiðablik hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína í 1. riðli A-deildar Lengjubikarsins, gegn Leikni R. og Aftureldingu, en Afturelding hafði gert 2-2 jafntefli við Leikni F. í fyrsta leik sínum. Blikar mæta næst ÍA eftir viku á Kópavogsvelli, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en Afturelding mætir Leikni R. í Egilshöll.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn