Valsmenn hafa ekki tapað deildarleik í Eyjum í rúm fimm ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2020 14:30 Valsmaðurinn Anton Rúnarsson skorar í fyrri leiknum á móti ÍBV. Vísir/Daníel
Olís deild karla í handbolta hefst á ný í kvöld með heilli umferð. Fyrsti leikurinn er stórslagur ÍBV og Vals í Eyjum. Valsmenn hafa kunnað mjög vel við sig í Eyjum undanfarin ár. Það þarf að fara aftur til 18. desember 2014 til að finna deildarleik þar sem ÍBV vann Val á heimavelli sínum í Vestmannaeyjum. Valsmenn hafa nefnilega unnið fimm síðustu deildarleiki liðanna í Vestmannaeyjum og slógu Eyjamenn líka á þessum tíma út á heimavelli þeirra í úrslitakeppninni vorið 2017. Á sama tíma og Valsmenn hafa haft tak á Eyjamönnum út í Eyjum hefur gengið mun betur hjá ÍBV liðinu á Hlíðarenda. ÍBV vann þannig eins marks sigur á Hlíðarenda í lok september, 26-25, og þriggja marka sigur í mars, 32-29. Valsmenn unnu 30-28 sigur í síðasta leik sínum í Vestmannaeyjum fyrir tæpum fimmtán mánuðum en fyrrum leikmaður ÍBV, Agnar Smári Jónsson, skoraði þá níu mörk á móti sínu gamla félagi og annar fyrrum Eyjamaður, Róbert Aron Hostert, var næstmarkahæstur með sjö mörk.Síðustu sex deildarleikir ÍBV og Vals i Eyjum: 5. nóvember 2018: Valur vann 2 marka sigur (30-28) 22. febrúar 2018: Valur vann 3 marka sigur (31-28) 16. október 2016: Valur vann 3 marka sigur (30-27) 17. mars 2016: Valur vann 6 marka sigur (30-24) 11. september 2015: Valur vann 2 marka sigur (26-24) 18. desember 2014: ÍBV vann 7 marka sigur (26-19) Leikur ÍBV og Vals hefst klukkan 18.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Klukkan 20.15 verður síðan sýndur leikur Aftureldingar og FH í beinni og Seinni bylgjan er síðan á dagskrá klukkan 21.15 annað kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira