Fólk geti slitið hjónabandi með jafn einföldum hætti og stofnað til Andrés Ingi Jónsson skrifar 29. janúar 2020 14:00 Fólk á að geta slitið hjónabandi með jafn einföldum hætti og það getur stofnað til þess. Þess vegna mælti ég fyrir frumvarpi um breytta tilhögun hjúskaparlaga í gær. Í stuttu máli mun breytingin verða til þess að fólk sem er sammála um að óska eftir lögskilnaði geti einfaldlega fengið hann án tafar. Undarleg krafa ríkisvaldsins Gildandi hjúskaparlög gera þá kröfu til fólks að skilja fyrst að borði og sæng í sex mánuði, áður en til lögskilnaðar kemur. Þetta er undarleg krafa af hálfu ríkisins, hvort sem við köllum það forræðishyggju eða afskiptasemi, en kemur þannig út að dómgreind fullorðins fólks sé síður treyst þegar það slítur hjónabandi en þegar það gengur í hjónaband. Frumvarpið er einfalt. Við núverandi hjúskaparlög bætist við grein sem orðast svo: „Nú eru aðilar sammála um að leita lögskilnaðar og ber þá að veita hjónum leyfi til slíks skilnaðar án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng komi fram ósk þess efnis frá þeim báðum, enda eigi þau hvorki sameiginlegar eignir né börn undir 18 ára aldri, eða hjón hafa náð samkomulagi um skipan forsjár fyrir börnum, um framfærslueyri og aðra skilnaðarskilmála.“ Minnihluti skilnaða fylgir meginreglu laganna Lögin eru þannig í dag að skilnaður að borði og sæng er meginreglan áður en til endanlegs lögskilnaðar kemur. Það er hins vegar alls ekki meginreglan ef litið er á tölfræðina. Árið 2018 spurði ég dómsmálaráðherra út í fjölda skilnaða síðustu fimm ára og þá sérstaklega um það sem kallað er beinn lögskilnaður. Það eru þau tilvik sem undanþága er veitt frá sex mánaða biðtímanum. Slíkar undanþágur eru í grófum dráttum veittar vegna framhjáhalds eða ofbeldis, en í þeim tilvikum verða að liggja fyrir sannanir eða játning. Það kom mér á óvart að samkvæmt svari ráðherra eru þau tilvik heil 55 prósent – þannig að minnihluti skilnaða fer því eftir meginreglu laganna. Það má velta því fyrir sér hvort staðan sé virkilega sú að rúmur helmingur hjónabanda endi vegna framhjáhalds eða ofbeldis, eða hvort skýringin geti verið sú að ósanngirni laganna neyði fólk til aðlaga málflutning sinn? Ég hef fengið að heyra nokkur dæmi frá því að þetta mál kom fyrst fram þar sem fólk hefur játað á sig hjúskaparbrot, sem ekki hafa verið framin, til að sleppa við þessa sex mánuði sem sumir líta einfaldlega á sem afplánun. Eftir breytinguna gerist ekki þörf á því. Það geta verið ótal ástæður fyrir því að fólk sækist eftir tafarlausum lögskilnaði, en lögin tiltaka bara tvær ástæður. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá þau fyrir sér. Hver er til dæmis staðan þar sem annar aðilinn uppgötvar að kynhneigð viðkomandi passar ekki sambandinu. Þá er ansi súrt að þurfa að sitja í hálft ár í sambandi sem þú upplifir af hjartans djúpri einlægni að þú getir ekki tilheyrt lengur - eða að játa sig hjúskaparbrot til að ná að stíga út úr því án tafar. Eftir breytinguna gerist ekki þörf á því. Ástin vottuð á viku Til gamans þá getum við skoðað hina hliðina á þessum peningi. Hver er staðan í dag ef fólk fellir hugi saman og langar að ganga í hjónaband? Þá þarf nefnilega engan sex mánaða umhugsunarfrest. Á höfuðborgarsvæðinu getur fólk leitað til sýslumannsins sem reiknar sér tvær til þrjár vikur til að kanna hvort hjónaefni uppfylli öll skilyrði og að finna hentugan tíma fyrir athöfnina. Ef ástin er þeim mun sterkari hjá fólki og því liggur þeim mun meira á þá getur það bankað upp á hjá öðrum sýslumannsembættum. Hjá embættinu á Selfossi er t.d. reiknað með því að hægt sé að koma fólki að um það bil viku frá því öllum pappírum er skilað. Í bónus fær fólk að ganga í hjónaband með iðinn af Ölfusá í bakgrunni þannig að sú leið væri ekki bara skjótvirkari heldur betri að ýmsu öðru leyti. Fólk á að geta slitið hjónabandi með jafn einföldum hætti og það geti stofnað til þess. Flóknara er málið ekki. Verði þetta frumvarp að lögum treystum við fólki einfaldlega jafn vel til að meta þessar tvær jafngildu ákvarðanir. Höfundur er alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Andrés Ingi Jónsson Fjölskyldumál Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar