Hlegið að Hitler Ívar Halldórsson skrifar 13. janúar 2020 09:00 Hljóðritaðri hótun fylgdi viðbjóðslegt myndband... Gullgráðugir Gyðingar Ég sá mynd um daginn sem er nú sýnd í bíó og fær frábæra dóma frá gagnrýnendum sem og óbreyttum áhorfendum. Myndin heitir „Jojo Rabbit“ og skartar leikurum eins og Scarlett Johansson, Sam Rockwell og Stephen Merchant, sem öll fara á kostum í þessari húmorísku ádeilu á hugmyndafræði Hitlers og nasistanna í seinni heimsstyrjöldinni. Aðalsöguhetjan er 10 ára drengur sem er hugfanginn af þessari hugmyndafræði og er í einskonar þjálfunarbúðum fyrir börn sem vilja ganga í her nasista. Hann hyggst skrifa bók um hina gjörspilltu og gullgráðugu Gyðinga og afhenda Adólfi sjálfum einn daginn. En Hitler-heimur hans snýst á hvolf þegar að hann kemst að því að móðir hans felur Gyðingastúlku inni á heimili þeirra. Heimsk hugmyndafræði Myndin er þrælfyndin en innifelur einnig öflugan og áríðandi boðskap. Hún gerir lítið úr þessari vanþroskuðu og heimsku hugmyndafræði sem því miður varð milljónum Gyðinga að bana, og varpar myndin ljósi á að Gyðingar eru ekkert frábrugðnir okkur. Ég vissi ekki hvers ég átti að vænta þegar ég settist í salinn - vissi ekki hvort ég hefði valið mynd sem var mér við hæfi. Það leið þó ekki á löngu þar til áhorfendur í salnum voru farnir að hlæja upphátt að atburðarásinni og það leyndi sér ekki að bíógestir voru mjög sáttir þegar þeir gengu út; sumir vonandi örlítið upplýstari um mannskemmandi mýtur um Gyðinga sem vilja reigja höfuðið þegar tækifæri gefst. Sjálfur var ég mjög sáttur og fannst heimurinn örlítið betri þegar ég gekk út. Heilaþvottastöð Hitlers Hvort sem við viljum viðurkenna það eða ekki þá örlar enn á Gyðingahatri hérlendis. Maður hefur því miður lesið ótal ummæli á samskiptamiðlum frá Íslendingum sem virðast halda að það hafi sérstakt skotleyfi á ímynd Gyðinga. Gamlar kreddur og úrelt hugmyndafræði sem fengu vængi á ný í heilaþvottastöðvum Hitlers og hans manna á heimstyrjaldarárum virðast enn berjast fyrir lífi sínu og bærast því miður enn í heilahvelum einhverra Íslendinga. Allt illt frá Ísrael Fjölmargir Gyðingar hérlendis hafa forðast að opinbera þjóðerni sitt hérlendis af ótta við afleiðingarnar. Þeir þora ekki að klæðast sínum fána eins og við gerum með stolti, t.d. þegar við sigrum íþróttaleiki eins og t.d. handknattleiksleikinn við Dani - hvað þá að veifa fána sínum opinberlega til að fagna sigri eigin íþróttaliða. Gyðingar sem búa hérlendis eru afar meðvitaðir um þjóðerni sitt í okkar landi þar sem fólki er kennt með nánast einhliða fjölmiðlafyrirsögnum og oft hlutdrægri skólamenntun að allt sem kemur frá Ísrael sé af hinu illa. Íslendingur fékk líflátshótun En það eru þó ekki eingöngu Gyðingar sem verða fyrir alvarlegu aðkasti hérlendis. Það gerðist um jólin að Íslendingur sem auglýsti vöru með ásaumuðum ísraelskum fána á íslenskri vefsíðu, fékk líflátshótun frá öðrum Íslendingi, sem augljóslega bar allt annað en hlýjan hug til Gyðingaþjóðarinnar. Hljóðritaðri hótun fylgdi viðbjóðslegt myndband þar sem manneskja sást flá aðra manneskju lifandi með hnífi. Ég hef séð þetta myndband og fullyrði að það er ekki hægt að senda óhuggulegri og kaldrifjaðri skilaboð til manneskju en þetta. Málið er að því er ég best veit í höndum lögreglu. Gyðingar borða ís Frelsið er yndislegt þegar þú færð að njóta þess. Því miður upplifa Gyðingar sig ekki frjálsa á meðal okkar í dag. Gyðingar eru samt ekki svo frábrugðnir okkur. Þeir eru fólk sem fékk ekki að ákveða sinn fæðingarstað frekar en við sem fæddumst hér á fróni; eiga börn, vini, ættingja, áhugamál og uppáhalds íþróttalið. Þeir hata og elska pólitík eins og við, horfa á Game of Thrones, fara í ræktina og elska að borða ís. Ég leyfi mér að vona að flestir hafi áttað sig á því að umhyggja fyrir öðrum óháð þjóðerni, sé eina leiðin til farsællrar framtíðar á þessari furðulegu plánetu sem er þó heimili okkar allra. Undir yfirborðinu Ég fagna því að til er fólk sem þorir að framleiða kvikmyndir sem ögra hatursfullri hugmyndafræði og upphefja heldur mannúðlega framkomu og náungakærleika. Ég fagna því að það er til fólk í heiminum sem þorir að minna okkur á að á bak við hina háu pólitíska múra leynast dýrmætar persónur af holdi og blóði. Á bak við mannskæðar mýtur eru fallegar manneskjur sem þrá að lifa í friði og spekt eins og við. Á bak við öfgafullar umræður er friðsælt fólk sem þráir að lifa í sátt og samlyndi við okkur. Ef við einblínum stöðugt á yfirborðið förum við hæglega á mis við fjársjóðinn sem undir kann að liggja. Góður endir Sagan hlýtur að hafa kennt okkur að hörundslitur okkar eða heimilisfang endurspegla ekki okkar innri mann. Við erum öll eins þegar við lítum undir yfirborðið. Virðing, frelsi og kærleikur er eitthvað sem við öll þurfum á að halda - sama hvar við byrjuðum okkar vegferð á þessari jörð. Stundum boðar bagaleg byrjun góðan endi. Í kvikmyndahúsinu var hlegið að Hitler; ekki að gyðingastúlkunni. Það er þá kannski eitthvað réttlæti í heiminum eftir allt saman. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar