Lægð gengur á land og gular viðvaranir Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. janúar 2020 07:05 Ýmist verður rigning eða snjókoma í dag. Vísir/Vilhelm
Lægð er nú suður af landinu og mun hún ganga yfir landið í dag. Þegar gætir úrkomu víða á landinu, ýmist rigningar eða snjókomu. Gular viðvaranir Veðurstofu taka gildi fyrir austan síðdegis í dag. Norðlæg átt er vestantil á landinu, 8-15 m/s, en annars staðar er austlæg átt, yfirleitt 5-10 m/s. „Eftir hádegi verður lægðin komin norður fyrir landið og vindur orðinn vestanstæður, 10-15 m/s og éljagangur, en styttir upp austantil og gengur í vestan 15-23 m/s á Suðausturlandi og Austfjörðum. Lægir í kvöld þegar að vindur snýr sér til austurs og næsta lægð tekur að stýra veðrinu á landinu. Hvöss austanátt á morgun með rigningu eða slyddu en snýst svo í hvassa suðvestanátt síðdegis með talsverðum éljagangi og kólnandi veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Eins og áður segir gera spár nú ráð fyrir að gular viðvaranir taki gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi síðdegis í dag. Búist er við vestanhvassviðri eða -stormi, 15-23 m/s. Þá gætu staðbundnir vindstrengir eða hviður orðið allt að 35 m/s. Veðurstofan beinir því til ökumanna að þeir fari varlega og íbúar tryggi lausamuni utandyra. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan 10-18 m/s og slydda eða rigning, en norðaustan 18-23 m/s og snjókoma á Vestfjörðum. Hiti kringum frostmark, en að 6 stigum syðst. Snýst í vestan 15-23 síðdegis með éljagangi og frystir, en léttir til eystra. Á miðvikudag: Vestan 15-23 m/s og gengur á með éljum, en lengst af léttskýjað eystra. Frost 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Suðvestanátt 15-23 m/s og él, en heldur hægair og léttskýjað austantil á landinu. Frost 2 til 8 stig. Á föstudag: Ákveðin suðlæg átt með rigningu, einkum sunnantil og hlýnandi veður. Á laugardag: Vestlæg átt og éljagangur, en úrkomulítið um landið austanvert. Kólnar í veðri. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt, úrkomulítið og kalt í veðri.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira