Nýtt lag frá MAMMÚT: „Lærðum að þekkja okkur betur sem hópur“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. ágúst 2020 17:00 Nýjasta plata MAMMÚT var unnin í tveimur löndum, sem styrkti samband hljómsveitarmeðlima. Mynd/Saga Sig
Hljómsveitin MAMMÚT gaf út smáskífuna Prince í dag, en laginu lýsa þau sem leikandi indí-goth með hljóðheim sem minnir á fantasíuferðalag frá níunda áratugnum. Lagið er að finna á tilvonandi plötu þeirra, Ride The Fire, sem kemur út 23. október næstkomandi. „Platan er tekin upp af Árna Hjörvari úr hljómsveitinni The Vaccines, en hann ljáir einmitt Prince ómþýða barítónrödd sína,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni. Katrína Mogensen, söngkona MAMMÚT, segir að Prince hafi orðið til snemma í upptökuferlinu en þau hafi haldið að það myndi aldrei enda á plötunni: „Þegar við vorum hins vegar að leggja lokahönd á upptökurnar þá lifnaði það skyndilega við og varð mikilvægur partur af henni. Prince varð því til á hárréttu augnabliki á algjörlega áreynslulausan hátt.“ Prince fylgir eftir lögunum Sun and Me og Fire sem komu út í síðasta mánuði, en sú smáskífa var einnig gefin út á 7” vínyl í takmörkuðu upplagi í gegnum heimasíðu MAMMÚT og í öllum betri plötubúðum, en aðeins eru örfá eintök eftir af henni. Myndefni vínylsins eru dúkristur eftir Ásu Dýradóttur bassaleikara hljómsveitarinnar, hannað og silkiprentað af hljómsveitarmeðlimum. Mynd eftir ljósmyndarann og listakonuna Sögu Sig prýðir bakhliðina. Hljóðblönduð af Sam Slater Platan Ride The Fire var tekin upp á Íslandi og London af Árna Hjörvari. Sam Slater hljóðblandaði plötuna en hann hefur meðal annars unnið með Hildi Guðnadóttir og upptökustýrt tónlistinni fyrir Joker og Chernobyl. Mandy Parnell, sem hefur meðal annars unnið með Björk og Sigur Rós sá síðan um hljóðjöfnun. „Ride The Fire er fyrsta útgáfa hljómsveitarinnar síðan platan Kinder Versions kom út árið 2017. Sú plata var tilnefnd til sex verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum það árið og hlaut þrjú þeirra. Katrína, Alexandra og Arnar stofnuðu MAMMÚT sem unglingar árið 2003 og fljótlega bættist Ása Dýradóttir í hópinn. Trommuleikarinn Valgeir Skorri Vernharðsson hefur nú gengið til liðs við hljómsveitina og þeytir frumraun sína sem meðlimur MAMMÚT á Ride the Fire en tilfinningaríkur og hljómmikill trommuleikur hans passar vel við leitandi hljóðheim sveitarinnar,“ segir í tilkynningunni. „Það kveður að mörgu leyti við nýjan hljóm hjá MAMMÚT á Ride The Fire en er þetta í fyrsta skiptið sem hljómsveitin tekur upp plötu á milli tveggja landa, Íslands og Bretlands. Þetta óhefðbundna upptökuferli leiddi til þess að hljómsveitarmeðlimir unnu að lagahlutum í sitt hvoru lagi, en ferlið skapaði þó ekki fjarlægð á milli hljómsveitarmeðlima heldur þvert á móti styrkti það traustið á milli þeirra og gaf þeim meira frelsi og vald til þess að spinna og umbreyta jafnvel lagasmíðum hvors annars. Plötuumslag Ride the Fire. Leikgleðin mikilvægt þema „Það var gagnkvæm virðing og frelsi í þessari vegferð,“ segir Ása. „Allar hugmyndir voru velkomnar. Þetta varð að hálfgerðri rannsóknarvinnu. Við lærðum að þekkja okkur betur sem hópur.“ Lögin á Ride The Fire eru sérstaklega myndræn og út frá þeim heimi skapaði hljómsveitin „persónur“ sem fylgja plötunni og eru hluti af sjónrænni umgjörð hennar. Ása lýsir þessu sem einskonar aðferð til að búa til strúktúr úr sköpunverki þeirra. Það mætti jafnvel líkja þessum persónulega sagnaheim við trúarbrögð en hann er þó glettinn í grunninn og er leikgleðin einmitt mikilvægt þema á plötunni. „Stjörnuspeki og trúarbrögð eru leið fyrir fullorðna til að leika sér og búa til nýtt myndmál. Við vorum mikið að hugsa um galdrana í því að búa til eigin sögur.“ Lögin tíu á Ride The Fire bjóða hlustandanum að stíga inn í þennan heim hljómsveitarinnar og upplifa það óvænta sem á vegi þeirra verður.
Menning Mest lesið „Áttum mörg falleg móment þar sem við töluðum um framtíðina“ Makamál Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Lífið Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Lífið Seldu húsið í stað þess að taka á sig hærri vexti og flytja til Asíu Lífið Laufey sendir lekamönnum tóninn Lífið Sjóræningjar réðust á Íslendinga Lífið Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull Lífið Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Gagnrýni „Ef þú ræðst svona aftur á mig þá stíg ég á fótinn þinn“ Lífið Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Lífið Fleiri fréttir Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira