Beið á þaki bílsins í tvær klukkustundir Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. ágúst 2020 12:16 Bíllinn var djúpt sokkinn þegar björgunarmenn komu að. Landsbjörg
Ökumaður sem var á leið yfir Kaldaklofskvísl við Hvanngil í morgun festi bíl sinn í ánni og þurfti að koma sér upp á þak bifreiðarinnar til að forða sér frá vatni sem flæddi inn. Ökumaðurinn var búinn að vera á þaki bílsins í um tvær klukkustundir þegar björgunarmenn komu að honum, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út vegna ökumannsins. Í tilkynningu segir að vel hafi tekist að koma manninum í land en nú rétt fyrir hádegi var enn unnið að því að koma bílnum úr ánni. „Var hann farinn að grafast niður og mátti því ekki tæpara standa að bjarga manninum,“ segir í tilkynningu. Jónas Guðmundsson hjá Landsbjörg segir í samtali við Vísi að maðurinn, erlendur ferðamaður, hafi verið einn á ferð. Tilkynning um ógöngur mannsins hafi borist frá vegfaranda sem var að ganga Laugaveginn og kom að honum í ánni. Jónas segir manninum ekki hafa orðið meint af en hann hafi þó verið orðinn nokkuð kaldur og hrakinn. Landsbjörg bendir á að vegna rigninga hefur vaxið mikið í ám á hálendinu. Margar þeirra eru því illfærar og jafnvel ófærar óbreyttum jeppum. Bíllinn í miðri ánni.Landsbjörg
Björgunarsveitir Rangárþing ytra Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira