Klopp alveg sama hvernig hann vinnur titilinn svo lengi sem hann vinnst Anton Ingi Leifsson skrifar 24. júní 2020 13:00 Jurgen Klopp. vísir/getty
Þjóðverjinn Jurgen Klopp kippir sér ekki mikið upp við það hvernig Liverpool mun vinna ensku úrvalsdeildina, svo lengi sem Englandsmeistaratitilinn skilar sér í hús hjá Bítlaborgarliðinu í fyrsta skipti í 30 ár. Liverpool er með tuttugu stiga forskot á toppi deildarinnar er átta umferðir eru eftir en liðið spilar við Crystal Palace í kvöld. Vinni liðið í kvöld og tapi Man. City gegn Chelsea annað kvöld er titillinn í húsi. „Í hreinskilni sagt, svo lengi sem þetta gerist þá hugsa ég ekki of mikið um hvernig það verður,“ sagði Klopp í samtali við fjölmiðla. Hann óttast ekki að taka við bikarnum með enga áhorfendur í stúkunni. „Svona er þetta. Að vinna Meistaradeildina og vera á leikvanginum þegar það gerðist var nokkuð gott en ég segi það aftur; lífið er ekki fullkomið svo þú verður að taka þessum aðstæðum.“ „Ég vil ekki tala um hvað gerist ef við vinnum. Mér er bara alveg sama. Ég mun tala nóg um það ef það gerist, en þangað til þá mun ég ekki hugsa um það. Ég vil vinna fótboltaleiki og ef eitthvað gerist, þá munum við bregðast við. Restina er mér alveg sama um.“ Liverpool var ekki sannfærandi í fyrsta leiknum eftir kórónuveiruhléið en þeir gerðu markalaust jafntefli gegn grönnunum í Everton og voru stálheppnir að tapa ekki leiknum undir lokin. 'I just don t care... life is not perfect'Jurgen Klopp not concerned about how Liverpool win the title | @DominicKing_DM https://t.co/kKDNlPIdUQ— MailOnline Sport (@MailSport) June 24, 2020
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira