Í síðustu viku spurðum við lesendur Vísis hvort að þeir hafi stundað net-kynlíf. Þegar talað er um netkynlíf er átt við öll kynferðisleg samskipti sem fara fram á netinu milli tveggja eða fleiri einstaklinga.
Ef marka má niðurstöður úr könnun Makmála, segist meirihluti lesenda hafa stundað net-kynlíf. Fólk skiptist á myndum, orðum eða myndböndum í þeim tilgangi að upplifa kynferðislega örvun sem endar oft á tíðum með sjálfsfróun.
Stefnumótaforrit sem bjóða upp á myndbandssamskipti hafa nýverið greint frá allt að 30-40% aukningu í notkun í kjölfar COVID-19 og samkomubanns svo að ætla má að tæknin hafi greinilega verið vel nýtt í nafni ástarinnar.
Alls tóku 2500 manns þátt í könnuninni og hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan:
Já - 52%
Nei - 42%
Nei, en langar að prófa - 6%
Makamál mættu í Brennsluna á FM957 í morgun og ræddu niðurstöðurnar. Einnig var kynnt til leiks ný Spurning vikunnar.
Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.