Innlent

Fundu sprengikúlu úr seinna stríði við jarðvinnu í Hafnarfirði

Atli Ísleifsson skrifar
Sprengikúlan fannst við jarðvinnu á lóð húss í miðbæ Hafnarfjarðar.
Sprengikúlan fannst við jarðvinnu á lóð húss í miðbæ Hafnarfjarðar. Landhelgisgæslan

Séraðgerða- og sprengjueyðingardeild Landhelgisgæslunnar var kölluð út að húsi í Hafnarfirði í gærdag vegna torkennilegs hlutar sem fannst við jarðvinnu á lóð húss í miðbænum.

Í tilkynningu frá Gæslunni segir að við athugun sprengjusérfræðinga hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða 20mm sprengikúlu úr seinna stríði sem var virk og nokkuð ryðguð, enda komin til ára sinna.

Landhelgisgæslan

„Sprengjusérfræðingarnir settu sprengjuna í sérstakt box ásamt sandi svo hægt væri að flytja hana til eyðingar. Að auki var jarðvegurinn við húsið grandskoðaður og skimaður með málmleitartæki til að ganga úr skugga um að þar leyndust ekki fleiri sprengjur.

Þegar búið var að gera sprengikúluna örugga til flutnings var ekið með hana að Stapafelli á Reykjanesskaga og henni eytt á svæði sem notað er til sprengjueyðingar.

Landhelgisgæslan

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa sinnt óvenju mörgum verkefnum þar sem hermunir úr seinna stríði finnast á víðavangi. Fyrir rúmri viku fann vegfarandi í hressingargöngu virka fallbyssukúlu á hinu svokallaða Patterson svæði í Reykjanesbæ sem var í góðu ástandi miðað við aldur og var henni eytt af séraðgerðasveitinni.

Nú þegar búist er við því að landsmenn verði á faraldsfæti innanlands í sumar eru líkur á að sprengjur úr seinna stríði finnist víða um land. Landhelgisgæslan hvetur fólk til að vera á varðbergi og ekki hika við að hafa samband við lögreglu ef torkennilegir hlutir finnast,“ segir í tilkynningunni.

Einn af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar á æfingu.Landhelgisgæslan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×