Fjörutíu daga heimsóknarbann hefur verið mörgum þungbært Sylvía Hall skrifar 16. apríl 2020 21:15 Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu. Vísir
Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, segir það hafa verið nauðsynlegt að setja á heimsóknarbann í ljósi þess ástands sem er í samfélaginu vegna kórónuveirufaraldursins sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. Það hafi þó ekki verið auðveld ákvörðun. „Við tókum þá ákvörðun 6. mars síðastliðinn að loka fyrir heimsóknir til íbúanna okkar, sem var í rauninni mjög þungbær ákvörðun en algjörlega nauðsynleg í ljósi þessa ástands sem nú ríkir. Við sjáum það núna að það var nauðsynlegt,“ segir Pétur í samtali við fréttastofu. Heimsóknarbannið hefur nú staðið yfir í fjörutíu daga. Sjá einnig: Ströng skilyrði fyrir heimsóknum á hjúkrunarheimili eftir 4. maí Hann segir tilslakanirnar hafa verið kynntar lauslega en hugmyndin sé að kynna þær betur í næstu viku og þær muni taka gildi þann 4. maí næstkomandi. Tilslakanirnar verði í mjög hægum og rólegum skrefum en hann vonar þó að þær muni létta fólki lífið. „Grunnurinn er þannig að það verður aldrei nema einn sem mun geta heimsótt í einu, að uppfylltum ákveðnum reglum og vinnureglum sem verða því tengdar. Þetta í rauninni er í vinnslu núna en mun létta mikið á fólki að geta boðið upp á eitthvað, því 4. maí verða hátt í sextíu dagar síðan þetta heimsóknarbann var sett,“ segir Pétur og bætir við að það hafi verið erfitt að banna heimsóknir ættingja og vina. „Það hefur náttúrulega verið mjög mörgum þungbært, þó nánast allir hafi sýnt því mikinn skilning. Fyrir það ber að þakka.“
Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Eldri borgarar Samkomubann á Íslandi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira