„Hann er heldur kuldalegur í dag“ Atli Ísleifsson skrifar 7. apríl 2020 07:01 Spákortið fyrir hádegið eins og það leit út í morgun. Veðurstofan „
Hann er heldur kuldalegur í dag, með éljum víða á landinu og snjókomu fyrir norðan í kvöld.“ Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Má búast við suðvestan 10 til 18 metrum á sekúndu, en hægara og léttskýjað austanlands. Norðlæg átt, 8 til 15 metrar á sekúndu og él norðanlands, en dálítil snjókoma þar í kvöld. Hiti verður í kringum frostmark. Veðrið fer þó batnandi á morgun, vindur gengur niður og léttir til. Áfram verði þó dálítil él á Norðausturlandi framan af degi. Þá segir að að útlit sé fyrir bjartviðri víða um land á skírdag, en stöku skúrum eða slydduéljum fyrir sunnan og vestan. Áfram verði þó fremur svalt í veðri, en hlýni talsvert syðst að deginum. Yfirlit: Vetrarfærð er um sunnan- og vestanvert landið og víða éljagangur. Á norðan- og austanverðu landinu vetrarfærð á nokkrum fjallvegum en annars víðast greiðfært. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) April 7, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og víð léttskýjað, en 8-13 og dálítil él NA-lands framan af degi. Frost 1 til 6 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á fimmtudag (skírdagur): Suðlæg átt, 3-8 m/s, skýjað með köflum og vægt frost, en 8-13 m/s og smá skúrir með suðurströndinni og hiti að 5 stigum þar. Á föstudag (föstudagurinn langi): Ákveðin suðaustanátt, rigning eða slydda og hiti 1 til 5 stig S-lands, en annars hægir vindar, bjartviðri og hiti við frostmark. Á laugardag: Suðaustan- og austanátt og dálítil rigning eða slydda, en þurrt að kalla NV til. Hlýnandi veður. Á sunnudag (páskadagur) og mánudag (annar í páskum): Útlit fyrir suðvestanáttir með hlýindum, dálítil væta S og V til, en annars þurrviðri.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Sjá meira