Hvassviðri á morgun og gular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 6. mars 2020 07:16 Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi sem taka gildi snemma í fyrramálið og gilda fram á kvöld. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, með golu eða kalda þar sem víða verður léttskýjað. Spáð er skýjuðu veðri norðaustanlands og dálitlum éljum fram yfir hádegi. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig, en í kvöld þykknar svo upp með vaxandi austanátt á Suðurlandi. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það gangi í austan 15 til 25 metra á sekúndu á morgun og verður hvassast syðst. Þessu fylgi snjókoma sunnanlands og á Austfjörðum og víða um land annað kvöld. Frost fer þá minnkandi. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi sem taka gildi snemma í fyrramálið og gilda fram á kvöld. Staðbundið geti hviður farið yfir 50 metra á sekúndu. Er búist við talsverðri eða mikilli snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni og slæmum aktursskilyrðum, en víða rigningu eða slyddu á láglendi síðdegis. Ekkert ferðaveður. „Á sunnudag er útlit fyrir stífa norðanátt, jafnvel hvassviðri eða storm norðaustantil á landinu. Snjókoma á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnanlands. Gular viðvaranir taka gildi í fyrramálið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í austan 15-25 m/s, hvassast syðst. Snjókoma eða slydda, einkum S- og A-lands og frost 0 til 5 stig en hlánar við suðurströndina síðdegis. Minnkandi austanátt um kvöldið. Á sunnudag: Norðan 13-20 og snjókom eða él, en hægari og þurrt á S- og SV-landi. Frost 0 til 6 stig, en hiti um eða yfir frostmarki S-lands að deginum. Á mánudag: Norðlæg átt og él á N-verðu landinu, en snjókoma syðst. Kalt í veðri. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt og él norðantil, en úrkomulaust sunnan heiða. Talsvert frost. Á fimmtudag: Útlit fyrir svipað veður áfram.
Veður Mest lesið Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Innlent Segir Kúbu næsta á eftir Íran Erlent Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Innlent „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Erlent Fleiri fréttir Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki Sjá meira