Innlent

Lilja og Svandís mættu á fjallahjólum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Alfreðsdóttir var með hjálm á höfði þegar boðsgestirnir biðu þess að vera ræstir út.
Lilja Alfreðsdóttir var með hjálm á höfði þegar boðsgestirnir biðu þess að vera ræstir út. Vísir/Vilhelm

Verkefnið Hjólað í vinnuna var sett við Þróttaraheimilið í Laugardal í morgun og voru ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á meðal þeirra sem mættu á hjólum sínum.

Flutt voru hvatningarávörp og fór Jóhann Alfreð Kristinsson með gamanmál. Vegna fjöldatakmarkana var setningarhátíð verkefnisins í ár aðeins fyrir boðsgesti en var send út á Facebook síðu Hjólað í vinnuna í staðinn.

Meðal boðsgesta sem fluttu ávarp í morgun voru Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Alma Dagjört Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.

Að ávörpunum loknum hjóluðu gestir verkefnið formlega af stað.

Hjólað í vinnuna 2020 á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

Heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna fer nú fram í átjánda sinn og stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 26. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. 

„Við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og daglegri hreyfingu. Einnig er mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga vel að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum. Verkefnið Hjólað í vinnuna er góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað þarf á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti og jafnframt frábær útivist og öflug líkamsrækt,“ segir í tilkynningu.

Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær:

Flestir þátttökudagar: Þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildarfjölda starfsfólks á vinnustaðnum. 

Kílómetrakeppni: Þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði.

Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða.

Í ár hvetur ÍSÍ þá sem vinna heiman frá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annan virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu. Einfaldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×