Hvítabirnir gera sig heimakomna í rússnesku þorpi Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 6. desember 2019 07:18 Þessi mynd af ísbirni er tekin í dýragarði. vísir/getty
Rúmlega fimmtíu hvítabirnir hafa gert sig heimakomna í rússnesku þorpi í Chukotka-héraði sem er nyrst í Rússlandi. Öllum samkomum hefur verið aflýst í þorpinu og vopnaðir verðir eru við skólann í þorpinu, ákveði birnirnir að gerast of nærgöngulir. Umhverfissinnar segja loftslagsbreytingum um að kenna en ísinn í grennd við þorpið hefur ekki náð að taka sig nægilega mikið í ári til að birnirnir hætti sér út á hann til veiða. Því leita þeir frekar í mannabyggð að mat. Sumir sérfræðingar segja að bærinn, Ryrkaypiy, þar sem um 700 manns búa, sé einfaldlega orðinn óbyggilegur, enda verði erfitt að losna við birnina með góðu úr þessu. Vanalega hafast þeir við í um tveggja kílómetra fjarlægð frá bænum áður en þeir leggja út á ísinn og oft hefur sést til bjarna í bænum í gegnum tíðina en aldrei hefur ástandið þó verið eins slæmt og nú.
Dýr Rússland Mest lesið Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Innlent Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Innlent Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Erlent Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Innlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Trump vann öll sveifluríkin Erlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Fleiri fréttir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Sjá meira