Tónlistarkonan Lizzo hlaut flestar tilnefningar til Grammy verðlaunanna. Hlaut hún alls átta tilnefningar en Billie Eilish og Lil Nas X fylgdu henni fast á eftir með sex tilnefningar hvort. Grammy verðlaunin eru ein þekktustu tónlistarverðlaun í heimi. Verðlaunahátíðin verður haldin þann 26. janúar næstkomandi.
Lizzo er tilnefnd í öllum stærstu flokkum hátíðarinnar. Hlaut hún meðal annars tilnefningu fyrir upptöku ársins, plötu ársins, lag ársins, besti nýliðinn og besti flutningurinn. Lizzo varð ekki vinsæl strax í upphafi ferilsins en lög eins og Truth Hurts, Juice og Good as hell hafa nú komið henni á toppinn.
Lizzo heitir réttu nafni Melissa Jefferson og er 31 árs. Platan hennar Cuz I Love You sem kom út í apríl er hennar þriðja plata.
Juice var fyrsta lagið hennar sem komst á Billboard R&B listann. Truth Hurts var síðan fyrsta lagið hennar sem komst á Billboard Hot 100 listann. Lagið kom út í september árið 2017 en fékk mikla athygli eftir að það heyrðist í Netflix myndinni Someone Great.
Tveir Íslendingar hlutu tilnefningu í þetta skiptið. Anna Þorvaldsdóttir er tilnefnd fyrir bestu upptöku á klassískri tónlist fyrir plötuna Aequa. Eins og kom fram á Vísi í gær er Hildur Guðnadóttir tónskáld tilnefnd fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Hildur er tilnefnd í flokki tónlistar í sjónrænum miðlum sem er tónlist kvikmynda, sjónvarpsþátta og tölvuleikja.
Upptaka ársins
HEY, MA - Bon Iver
BAD GUY - Billie Eilish
7 RINGS - Ariana Grande
HARD PLACE - H.E.R.
TALK - Khalid
OLD TOWN ROAD - Lil Nas X og Billy Ray Cyrus
TRUTH HURTS - Lizzo
SUNFLOWER - Post Malone og Swae Lee
Plata ársins
I,I - Bon Iver
NORMAN F***ING ROCKWELL! - Lana Del Rey
WHEN WE ALL FALL ASLEEP, WHERE DO WE GO? - Billie Eilish
THANK U, NEXT - Ariana Grande
I USED TO KNOW HER - H.E.R.
7 - Lil Nas X
CUZ I LOVE YOU (DELUXE) – Lizzo
FATHER OF THE BRIDE - Vampire Weekend
Lag ársins
ALWAYS REMEMBER US THIS WAY – Lady Gaga
Höfundar: Natalie Hemby, Lady Gaga, Hillary Lindsey og Lori McKenna
BAD GUY – Billie Eilish
Höfundar: Billie Eilish O'Connell og Finneas O'Connell
BRING MY FLOWERS NOW - Tanya Tucker
Höfundar: Brandi Carlile, Phil Hanseroth, Tim Hanseroth og Tanya Tucker
HARD PLACE – H.E.R.
Höfundar: Ruby Amanfu, Sam Ashworth, D. Arcelious Harris, H.E.R. og Rodney Jerkins
LOVER - Taylor Swift
Höfundur: Taylor Swift
NORMAN F***ING ROCKWELL – Lana Del
Rey Höfundar: Jack Antonoff og Lana Del Rey
SOMEONE YOU LOVED – Lewis Capaldi
Höfundar: Tom Barnes, Lewis Capaldi, Pete Kelleher, Benjamin Kohn og Sam Roman
TRUTH HURTS – Lizzo
Höfundar: Steven Cheung, Eric Frederic, Melissa Jefferson og Jesse Saint John
Besti nýliðinn
BLACK PUMAS
BILLIE EILISH
LIL NAS X
LIZZO
MAGGIE ROGERS
ROSALÍA
TANK AND THE BANGAS
YOLA
Tilnefnt er í 84 flokkum og hér má nálgast allar Grammy-tilefningarnar í ár. Einnig má sjá tilnefningar tilkynntar í myndbandinu hér að neðan.